Elín Guðmundsdóttir skipar 3. sæti á M-Lista Samfélagsins í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, að því er fram kemur í tilkynningu frá framboðinu í dag. Elín starfar sem bókari hjá ENOR og er jafnframt í hlutastarfi við bókhald og fjárreiður hjá Vinnuvélum Eyþórs á Húsavík.
Í tilkynningu frá framboðinu segir að það sé mikill fengur fyrir Norðurþing að fá slíkan dugnaðarfork og reynslubolta sem býður starfskrafta sína í næstu sveitarstjórn.
„Hún hefur starfað s.l. 30 ár í bókhaldi og hjá Landsbankanum, stofnað og rekið Pizzakofann á Húsavík og nú rekur fjölskyldan lítið þjónustufyrirtæki. Hún hefur verið virk í íþrótta- og félagslífi m.a. í blaki hjá Völsungi. Ella er virk í Björgunarsveitinni Garðari og er gjaldkeri sveitarinnar. Hún er gift Kristjáni Phillips, sem starfar við pípulagnir hjá Heimamönnum. Þau eiga stóra fjölskyldu, 5 börn og 5 barnabörn,“ segir í fréttatilkynningu frá M-listanum.

