Almennur félagsfundur í Félagi eldri borgara á Húsavík og nágrenni, sem haldinn var í febrúar, samþykkti ályktanir þar sem meðal annars er fjallað um stöðu matvöruverslunar á Húsavík og opnunartíma og gjaldskrá Sundlaugar Húsavíkur.
Skorað á verslanir að bæta þjónustu
Fundurinn beinir því til þeirra sem reka matvöruverslanir í bænum að bæta þjónustu við íbúa. Í ályktuninni segir að ítrekað hafi verið kvartað yfir skorti á nauðsynjavörum og að oft séu margar hillur í verslunum tómar eða nánast tómar. Fundarmenn telja að með meiri árvekni og skipulagðari pantanakerfi megi koma í veg fyrir slíkan skort.
Jafnframt er skorað á rekstraraðila matvöruverslana á svæðinu að bjóða upp á heimsendingarþjónustu. Með því væri hægt að gera íbúum sem eiga erfitt með að fara sjálfir í verslanir kleift að versla í heimabyggð, í stað þess að þurfa að fá matvörur sendar frá Akureyri.
Áhyggjur af breytingum á sundlauginni
Í annarri ályktun fundarins er fjallað um opnunartíma og gjaldskrá Sundlaugar Húsavíkur. Félag eldri borgara harmar að opnunartími laugarinnar hafi verið skertur og skorar á bæjaryfirvöld að halda fyrri opnunartíma óbreyttum.
Fundurinn bendir einnig á að í mörgum sveitarfélögum landsins sé ekki innheimt gjald af eldri borgurum fyrir afnot af íþróttamannvirkjum sem sveitarfélög eiga og reka. Sú sé hins vegar ekki raunin í Norðurþingi, sem félagið segir miður fara. Óskað er eftir að gjaldtakan verði endurskoðuð. Á meðan gjald er innheimt leggja fundarmenn til að eldri borgurum verði gert kleift að skipta greiðslum, til dæmis þegar um árskort er að ræða.
Í ályktuninni er jafnframt bent á að regluleg líkamsrækt hafi jákvæð áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu og geti þannig dregið úr þörf fyrir heilbrigðis- og félagsþjónustu.

