Góðu skemmtimóti var að ljúka og stemningin var frábær. Fyrirkomulagið var þannig að dregið var í lið.
Í A-úrslitum fór þetta þannig að Sævar Örn Guðmundsson og Jakob Pálmi Pálmason mættu Þresti og Viktori í undanúrslitum. Þar höfðu Þröstur Þór Sigurðsson og Viktor Freyr betur og fóru í úrslit.
Í hinum undanúrslitaleiknum mættust Brynjúlfur Sigurðsson og Snorri Gunnlaugsson gegn Gumma Lilla og Guðmundi Helgasyni, þar sem Billi og Snorri höfðu sigur.
Úrslitaleikurinn var því á milli Viktors og Þrastar annars vegar og Billa og Snorra hins vegar. Leikurinn var mjög spennandi og endaði 3–2 fyrir Billa og Snorra, sem þar með unnu mótið.
Í B-úrslitum áttust við Gummi Flosi og Jónas gegn Sigmundi Arnari Jósteinssyni og Sören Gestssyni. Þar höfðu Guðmundur Flosi Arnarson og Jónas Halldór Friðriksson sigur og unnu B-úrslitin.
Takk fyrir frábært kvöld og góða stemningu!

