Gunnhildur í Sparisjóðnum heiðruð fyrir störf í þágu verslunar í heimabyggð

Gunnhildur Gunnsteinsdóttir og Heiðar Hrafn Halldórsson voru heiðruð á aðalfundi Markþings sem fram fór á Húsavík í gærkvöldi. Í fyrsta sinn í sögu samtakanna var útnefndur sérstakur heiðursmeðlimur Markþings. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem sýnt hefur af sér framúrskarandi baráttu í þágu verslunar eða ferðaþjónustu í heimabyggð, án þess að starfa beinlínis í greininni sjálfri og var það Gunnhildur Gunnsteinsdóttir, starfsmaður Sparisjóðs Þingeyinga á Húsavík, sem hlaut heiðurinn að þessu sinni.

Í greinargerð Markþings um útnefninguna segir að Sparisjóðurinn hafi um árabil verið lykilaðili í sölu Húsavíkurgjafabréfa og veitt verkefninu umfangsmikla þjónustu, meðal annars með sölu og afhendingu bréfanna og móttöku á notuðum bréfum. Þar hafi áhugi og dugnaður Gunnhildar skipt sköpum.

„Hún hefur í meira en áratug verið aðaltengiliður bankans við Markþing og gengið vasklega á eftir því að hlutirnir gangi vel fyrir sig. Þetta fordæmi Gunnhildar hefur verið gríðarlega mikilvægt og ein af lykilástæðum þess að gjafabréfin hafa selst fyrir tugi milljóna undanfarin ár,“ segir meðal annars í greinargerðinni.

Þá var Heiðar Hrafn Halldórsson heiðraður í lok fundarins fyrir áralöng og farsæl störf í stjórn Markþings.

Ný stjórn Markþings

Á aðalfundinum var einnig kjörin ný stjórn samtakanna. Í aðalstjórn sitja:

Benedikt Þorri Sigurjónsson
Daniel Chandrachur Annisius
Helga Björg Sigurðardóttir
Kristín Káradóttir
Kristján Örn Sævarsson
og Eiður Pétursson sem fulltrúi Norðurþings

Í varastjórn voru kjörin:
Birna Íris Barkardóttir
Svava Hlín Arnarsdóttir
og Ingibjörg Benediktsdóttir sem fulltrúi Norðurþings

Úr aðalstjórn kvöddu Heiðar Hrafn Halldórsson og Sólveig Ása Arnarsdóttir, en úr varastjórn hurfu Erika Lind Isaksen og Gunnar Jóhannesson.

Á fundinum fór Helga Björg Sigurðardóttir formaður einnig yfir starfsemi síðasta árs. Þar bar hæst opnun nýrrar heimasíðu Visit Húsavík, metsölu á Húsavíkurgjafabréfum og þátttöku í auglýsingaherferðum bæði innanlands og erlendis.