Starfsemi Krabbameinsfélags Suður-Þingeyinga er í sókn þessa dagana og ný stjórn hefur tekið við störfum. Samhliða því er unnið að því að efla stuðningsnet fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra á svæðinu.
Um helgina skreytti hópurinn Lóurnar miðbæ Húsavíkur í tilefni af Mottumars. Lóurnar eru hópur fólks sem hefur sjálft greinst með krabbamein eða er aðstandendur þeirra. Hópurinn hittist reglulega, yfirleitt hálfsmánaðarlega í Bjarnahúsi, þar sem þátttakendur ræða réttindi, miðla reynslu og gera ýmislegt skemmtilegt saman.
„Við erum að reyna að rífa upp starf Krabbameinsfélagsins hér á Húsavík og í nágrenni. Þetta er mikilvægt stuðningsnet fyrir fólk,“ segir Ásgerður Arnardóttir, nýr formaður félagsins, í samtali við Húsavík.com.
Á föstudaginn 6. mars verður haldið kótelettukvöld í Golfskálanum, í samstarfi Krabbameinsfélagsins og Golfskálans. Ásgerður segir að kvöldið hafi vakið mikinn áhuga og sé þegar orðið uppselt. „Okkur voru gefnar tvær myndir sem við ætlum að bjóða upp á kvöldinu og ágóðinn rennur til einstaklings sem þarf á stuðningi að halda,“ segir Ásgerður.
Félagið vinnur jafnframt að aukinni fræðslu og ráðgjöf um krabbamein. Næsti ráðgjafatími verður 20. apríl og fer fram í sal Framsýnar. Þar geta krabbameinsgreindir einstaklingar og aðstandendur leitað sér ráðgjafar án endurgjalds.
Lóurnar fagna einnig eins árs afmæli sínu á sumardaginn fyrsta. Af því tilefni er stefnt að afmælisfögnuði með fjölbreyttri dagskrá og hefur hópurinn meðal annars rætt við kirkjuna og hagsmunasamtök barna um samstarf. Allir sem vilja taka þátt eða kynna sér starfsemina eru hvattir til að hafa samband við félagið.
Ný stjórn Krabbameinsfélagsins skipa:
Ásgerður Arnardóttir, formaður
Guðrún Kristinsdóttir, ritari
Gunnhildur Gunnsteinsdóttir, gjaldkeri
Aðalbjörg Sigurðardóttir, meðstjórnandi
Berglind Ólafsdóttir, meðstjórnandi.


