Heimild til sölu á flugstöð Húsavíkurflugvallar vekur hörð viðbrögð

Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027 er að finna heimild til sölu á flugstöð Húsavíkurflugvallar í Aðaldal. Áformin hafa vakið hörð viðbrögð á svæðinu og segjast bæði forsvarsmenn Framsýnar og Norðurþings ætla að bregðast við málinu.

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags, segir í samtali við Húsavík.com að félagið hafa þegar brugðist við málinu.

„Ég er búinn að setja mig í samband við alla þingmenn kjördæmisins og vildi fá það staðfest hvort þeir ætluðu virkilega að standa að því að selja flugstöðina á Húsavíkurflugvelli,“ segir Aðalsteinn.

Hann segir fyrstu viðbrögð þingmanna benda til þess að málið hafi komið mörgum þeirra á óvart.

„Þingmenn, bæði í stjórnarliði og stjórnarandstöðu, virðast koma af fjöllum. Það er mikilvægt að koma í veg fyrir svona hugleiðingar á sama tíma og við erum að reyna að laða hingað ný tækifæri, bæði á Bakka og annars staðar í samfélaginu.“

Húsavíkurflugvöllur hefur um áratugaskeið verið mikilvægur hluti af samgönguinnviðum Þingeyjarsýslna og gegndi meðal annars lykilhlutverki á uppbyggingarárunum á Bakka, þegar mikil umferð starfsmanna og annarra sem tengdust framkvæmdunum fór um völlinn.

„Hvort sem við erum að tala um stór verkefni í atvinnulífinu eða frekari uppbyggingu í ferðaþjónustu þá skiptir þessi völlur okkur miklu máli og við eigum að standa vörð um hann,“ segir Aðalsteinn.

Málið til umræðu í byggðarráði Norðurþings í vikunni

Helena Eydís Ingólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, segir söluheimildina stórt mál sem sveitarfélagið þurfi að bregðast við. Völlurinn gegni mikilvægu hlutverki vegna sjúkraflugs.

„Þetta er stórt mál sem við þurfum að bregðast við, ekki síst með tilliti til sjúkraflugs sem er stórt öryggismál á svæðinu, bæði fyrir íbúa og okkar fjölmörgu gesti,“ segir Helena Eydís.

Bergþór Bjarnason sveitarstjóri staðfesti í samtali við Húsavík.com að málið verði á dagskrá fundar byggðarráðs sem boðaður hefur verið á fimmtudag.