Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims og tekur hún til starfa 1. október næstkomandi.
Hildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun og verkefnastjórnun, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún er með meistaragráðu í rekstrarverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet og BS-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.
„Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Eims. Ég sé gríðarleg tækifæri á Norðurlandi til að skapa ný verðmæti með því að nýta betur þær auðlindir, þekkingu og kraft sem þegar er til staðar á svæðinu,“ segir Hildur.
Stjórn Eims segist ákaflega ánægð með ráðninguna og sannfærð um að reynsla, þekking og leiðtogahæfileikar Hildar muni nýtast félaginu vel. Áfram verði lögð áhersla á að tengja saman fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og þekkingu og styðja við verkefni sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á Norðurlandi.

