Aldey leiðir nýtt vinstri framboð Velferðar

Fulltrúar V-listans, hins nýja vinstri framboðs Velferðar, funduðu á Húsavík í gærkvöld þar sem gengið var frá uppstillingu í efstu sæti framboðslistans fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Norðurþingi í vor. Aldey Unnar Traustadóttir, hjúkrunarfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi í Norðurþingi frá árinu 2021, leiðir listann. Í samtali við Húsavík.com í gær sagði Aldey …

Helmingur erlendra íbúa telur rödd sína ekki heyrast í nærsamfélaginu

„Mér finnst áhugavert að þegar þátttakendur voru spurðir hvort þeir teldu að skoðanir þeirra væru teknar til greina í ákvörðunum sem varða nærsamfélagið sagði helmingur þátttakenda svo ekki vera,“ segir Lilja Berglind Rögnvaldsdóttir hjá Þekkingarneti Þingeyinga í samtali við Húsavík.com um niðurstöður nýrrar rannsóknar á stöðu og reynslu erlendra …

„Við erum nýtt framboð, en það er mikil reynsla í þessum hópi“

Pólitískur bakgrunnur frambjóðenda Óskalistans er nokkuð fjölbreyttur og eru nokkrir reynsluboltar í þeirra röðum, en þriðjungur frambjóðenda hefur áður boðið sig fram í sveitarstjórnarkosningum í Norðurþingi, frá því sveitarfélagið var stofnað árið 2006. „Við erum nýtt framboð, en það er mikil reynsla í þessum hópi og það mun skipta …

Mozart í Mývatnssveit í dymbilviku

Undir merkjum tónlistarhátíðarinnar Músík í Mývatnssveit 2026 verður í ár flutt gamanóperan Der Schauspieldirektor eftir Wolfgang Amadeus Mozart, sem á íslensku nefnist Viðburðastjórinn. Hátíðin hefur verið haldin í Mývatnssveit í dymbilviku samfellt frá árinu 1998. Sýningarnar verða tvær í félagsheimilinu Skjólbrekku, annars vegar á skírdag 2. apríl og hins …

Fótboltagoðsögnin Eric Cantona meðal leikara í stórmynd á Hólmavík

Franska fótboltagoðsögnin Eric Cantona er meðal leikara í alþjóðlegri kvikmynd sem nú er í tökum á Hólmavík á Ströndum. Verkefnið er umfangsmikið og hefur þegar vakið mikla athygli á svæðinu, enda er um að ræða alþjóðlegt kvikmyndaverkefni með stórum hópi erlendra og íslenskra kvikmyndagerðarmanna og leikara. Myndin heitir Hólmavík og bærinn …