Úthlutuðu 3,5 milljónum úr samfélagssjóði Orkuveitu Húsavíkur
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur samþykkti á 278. fundi sínum að úthluta samtals 3,5 milljónum króna úr samfélagssjóði fyrirtækisins til fjölbreyttra verkefna í Norðurþingi. Styrkirnir renna til íþrótta-, menningar-, samfélags- og heilsueflingarverkefna á Húsavík, Raufarhöfn, Kópaskeri og í Öxarfirði. Hæsta einstaka úthlutunin að þessu sinni var 700 þúsund króna styrkur til …
