Mikið rót í alþjóðamálum og samningsstaða Íslands sterk segir forsætisráðherra

Blaðamannafundur ríkisstjórnarinnar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB hófst rétt í þessu og er hægt að fylgjast með honum í beinni útsendingu á RÚV. Á fundinum kom fram að ríkisstjórnin hyggst leggja til að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram þann 29. ágúst næstkomandi, þar sem landsmenn verði spurðir einnar spurningar: „Á …

Helena Eydís Ingólfsdóttir leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi

Helena Eydís Ingólfsdóttir mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þetta var ákveðið rétt í þessu á félagsfundi Sjálfstæðisfélaganna í Norðurþingi sem nú stendur yfir í sal Framsýnar á Húsavík. Helena hefur tvisvar áður verið í framvarðasveit flokksins í sveitarstjórnarkosningum. Hún skipaði 2. sæti listans árið …

Barátta Tjörnesinga skilar sér: Ráðherra hættur við lágmarks íbúafjölda í sveitarfélögum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi að nýjum sveitarstjórnarlögum á Alþingi. Með frumvarpinu eru lagðar til víðtækar breytingar á gildandi lögum, en ráðherrann hefur jafnframt fallið frá fyrri hugmyndum um að setja á lágmarksíbúafjölda í sveitarfélögum landsins. Málið hefur verið mikið til umræðu á Norðausturlandi undanfarna mánuði, …

Stjórn hafnasjóðs segir ákvarðanir hafa verið teknar af meiri heift en skynsemi

Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings fundaði í morgun vegna kröfu Gentle Giants á hendur sjóðnum sem nemur um 90,8 milljónum króna. Krafan byggir á dómi Landsréttar þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að hafnasjóður hefði ekki haft heimild til að innheimta farþegagjald með þeim hætti sem gert var. Hæstiréttur hafnaði …

Íbúar á Tjörnesi ræddu ráðstöfun milljóna sem þau fengu ekki að skila

Íbúafundur fór fram í félagsheimilinu Sólvangi á Tjörnesi um helgina þar sem rætt var um hvernig ráðstafa eigi tæplega 250 milljónum króna sem sveitarfélagið fékk úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna fólksfækkunar. Að sögn Aðalsteins J. Halldórssonar, oddvita Tjörneshrepps, var mæting afar góð og flestir íbúar hreppsins mættir á fundinn. „Það …

Nowy zarząd i zwiększona aktywność w Stowarzyszeniu Walki z Rakiem w Húsavík

Działalność Stowarzyszenia Walki z Rakiem w Suður-Þingeyjarsýsla w ostatnim czasie wyraźnie się rozwija, a nowy zarząd objął właśnie swoje obowiązki. Równolegle prowadzone są działania mające na celu wzmocnienie sieci wsparcia dla osób chorych na raka oraz ich bliskich w regionie. W miniony weekend grupa Lóurnar udekorowała centrum Húsavíku z …