Krabbameinsfélagið færði öllum deildum leikskólans Grænuvalla sólarvörn að gjöf

Krabbameinsfélag Suður-Þingeyinga kom færandi hendi í leikskólann Grænuvelli í dag með sólarvörn handa öllum deildum leikskólans. „Það er gott að eiga góða að og nú voru öðlingarnir í Krabbameinsfélagi Suður-Þingeyinga að koma færandi hendi með sólarvörn handa öllum deildum. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir og takk fyrir innlitið …

Tinna Ósk ráðin félagsmálastjóri Norðurþings

Tinna Ósk Óskarsdóttir hefur verið ráðin í starf félagsmálastjóra Norðurþings, en Norðurþing auglýsti starfið í apríl síðastliðinn. Greint var frá ráðningunni á vef sveitarfélagsins í morgun. Tinna er með BA próf í uppeldis- og menntunarfræði og MA próf í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf frá Háskóla Íslands. Tinna hefur starfað við …

Regnbogabraut verður lokað fyrir umferð á góðviðrisdögum í sumar

Rætt var um Regnbogabraut á Húsavík á síðasta fundi skipulags- og framkvæmdaráðs Norðurþings, en þar óskaði sviðsstjóri umhverfissviðs eftir heimild til götulokunar á góðviðrisdögum í sumar. Ráðið samþykkti lokun hluta Garðarsbrautar, frá Garðarshólma að Samkomuhúsi, á tímabilinu 17. júlí til 4. ágúst 2026. Regnbogabrautin var fyrst máluð á Garðarsbraut …

Framhaldsskólinn á Laugum mannréttindaskóli ársins hjá Amnesty þriðja árið í röð

Framhaldsskólinn á Laugum hefur enn á ný hlotið viðurkenningu Amnesty International sem Mannréttindaskóli ársins og er þetta þriðja árið í röð sem skólinn stendur uppi sem sigurvegari miðað við nemendafjölda í framhaldsskólakeppninni „Þitt nafn bjargar lífi“. Keppnin er hluti af alþjóðlegri mannréttindaherferð Amnesty International þar sem safnað er undirskriftum …

Tónleikagestir í troðfullri Húsavíkurkirkju tóku vel undir á útgáfutónleikum Ágústs

Það voru þétt setnir bekkirnir í Húsavíkurkirkju í gærkvöldi þegar Ágúst steig á svið (eða öllu heldur að altarinu) og hélt ásamt hljómsveit sinni útgáfutónleika fyrir nýju plötuna, Hjartað á milljón. Kirkjan var troðfull og sjaldan hefur jafn mikill fögnuður ómað undir kirkjuhvelfingunum og þegar tónleikarnir hófust. Strax í …

Börn að leik á Húsavík árið 1953 er mynd vikunnar hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur

Ljósmyndasafn Reykjavíkur birti í gær fallega mynd af leikvelli við Barnaskólann á Húsavík, nú Borgarhólsskóla, en myndin var mynd vikunnar á vef safnsins. Myndina tók ljósmyndarinn Gunnar Rúnar Ólafsson árið 1953 og gefur hún skemmtilega innsýn í bæjarlíf Húsvíkinga um miðja síðustu öld. Húsavík.com hringdi í Ljósmyndasafn Reykjavíkur og …

Markþing kallaði frambjóðendur til samtals um verslun og ferðaþjónustu

Markþing, áður Húsavíkurstofa, stóð í dag fyrir opnum fundi í Safnahúsinu á Húsavík þar sem málefni verslunar og ferðaþjónustu í Norðurþingi voru rædd. Fimm af sex framboðum í sveitarfélaginu sendu fulltrúa á fundinn og svöruðu þau bæði spurningum fundarstjóra og gesta úr sal. Fundinum stýrði Daníel Chandrachur Annisius, stjórnarmaður …