Framsókn gagnrýnir tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB

Framsóknarflokkurinn gagnrýnir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu 29. ágúst næstkomandi. Lilja Alfreðsdóttir, formaður flokksins, segir ríkisstjórnina vera að forgangsraða rangt og hlaupa frá þeim verkefnum sem hún hafi verið kosin til að sinna. Að hennar mati ætti fókus stjórnvalda …

Brynjar Baldursson í 4. sæti M-Lista Samfélagsins

Brynjar Baldursson, framkvæmdastjóri Heimamanna ehf. og sjúkraflutningamaður, skipar 4. sæti á M-Lista Samfélagsins í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í maí. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá framboðinu í dag. Í tilkynningunni segir að Brynjar, sem oft er kallaður „Binni í Heimamönnum“, hafi víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og hafi á …

Helena Eydís Ingólfsdóttir leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi

Helena Eydís Ingólfsdóttir mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þetta var ákveðið rétt í þessu á félagsfundi Sjálfstæðisfélaganna í Norðurþingi sem nú stendur yfir í sal Framsýnar á Húsavík. Helena hefur tvisvar áður verið í framvarðasveit flokksins í sveitarstjórnarkosningum. Hún skipaði 2. sæti listans árið …

Stjórn hafnasjóðs segir ákvarðanir hafa verið teknar af meiri heift en skynsemi

Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings fundaði í morgun vegna kröfu Gentle Giants á hendur sjóðnum sem nemur um 90,8 milljónum króna. Krafan byggir á dómi Landsréttar þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að hafnasjóður hefði ekki haft heimild til að innheimta farþegagjald með þeim hætti sem gert var. Hæstiréttur hafnaði …

Eysteinn Heiðar leiðir lista Framsóknar og félagshyggjufólks í Norðurþingi

Eysteinn Heiðar Kristjánsson, verkefnastjóri hjá HSN, er nýr oddviti Framsóknar og félagshyggjufólks í Norðurþingi fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí. Tilkynnt var um fjögur efstu sæti á listans á fundi Framsóknarfélags Þingeyinga í morgun. Í öðru sæti er Bylgja Steingrímsdóttir, sjúkraliði. Þriðja sætið skipar Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi á Hóli í …

Framboðsmálin: „Þegar Samfylkingin er orðin sexý þá kemur flokkseigendafélagið á fleygiferð“

„Þegar Samfylkingin er orðin sexý þá kemur flokkseigendafélagið á fleygiferð og ætlar að henda oddvitanum,“ segir einn heimildarmaður Húsavík.com sem telur illa vegið að oddvita flokksins, Benóný Val Jakobssyni. Húsavík.com hefur rætt við mikinn fjölda fólks í baklöndum framboðanna í Norðurþingi síðasta sólarhringinn um stöðu uppstillinga, menn og málefni. …