Ó-listinn kominn með 17 frambjóðendur og vantar einn til að fylla listann

Hópur fólks á austursvæði Norðurþings vinnur nú að því að bjóða fram nýjan lista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Listinn hefur fengið vinnuheitið Ó-listinn og er hann kominn með 17 frambjóðendur sem hafa lýst vilja til framboðs, en einn vantar til að fylla listann.

Það er Ómar Gunnarsson frá Efri-Hólum við Kópasker sem hefur farið fyrir undirbúningi framboðsins. Að hans sögn kemur hópurinn að mestu frá austurhluta sveitarfélagsins, þar sem margir telja að rödd svæðisins heyrist ekki nægilega skýrt í stjórnsýslu Norðurþings.

„Ef ekkert breytist þá er ég að fara að leiða listann, en það er ekkert fast og ef einhver slæst í hópinn sem hefur sérstakan áhuga á að leiða þá breytir það stöðunni. Þetta snýst ekki um einstakar persónur heldur hugsjón okkar fyrir svæðið,“ segir Ómar.

Hann segir að meirihluti þeirra sem hafa lýst vilja til að vera á listanum komi frá Raufarhöfn, Kópaskeri og Öxarfjarðarsvæðinu, en hópurinn vilji þó bæta við fólki frá fleiri stöðum innan sveitarfélagsins.

„Fáir fulltrúar eru frá Húsavík á listanum, en við erum þó komnir með frambjóðanda þaðan. Við erum að reyna að fá fleiri frá Húsavík og einnig úr Reykjahverfi,“ segir hann.

Samkvæmt Ómari er markmið framboðsins að tryggja að fleiri raddir frá austursvæði sveitarfélagsins komi að ákvörðunum í sveitarstjórn og nefndum.

„Við viljum sjá fleiri raddir koma inn í sveitarstjórn og nefndir héðan af svæðinu, en bara þessa einn til tvo frambjóðendur sem eru settir á lista fyrir kosningar, meira til skrauts. Það að vera boðið þriðja eða fjórða sæti á einhverjum lista skilar okkur voðalega litlu,“ segir hann.

Hann bætir við að mörgum finnist landsmálaflokkarnir hafa of mikil áhrif í sveitarstjórnarmálum.

„Það eru allir komnir með leið á þessum landsmálaflokkum sem er verið að troða inn í sveitarstjórnarkerfið, sérstaklega í svona fámennu samfélagi eins og Norðurþing er.“

Sveitarfélagið Norðurþing varð til við sameiningu fjögurra sveitarfélaga árið 2006: Húsavíkurbæjar, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps. Þéttbýliskjarnar sveitarfélagsins eru Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn, auk sveitanna Melrakkasléttu, Öxarfjarðar, Núpasveitar, Kelduhverfis og Reykjahverfis, en Reykhverfungar höfðu sameinast Húsavíkurbæ árið 2002. Íbúar sveitarfélagsins eru í dag 3732 talsins og þar af búa 2479 í þéttbýli á Húsavík, 184 á Raufarhöfn og 121 á Kópaskeri.