Kvenfélagskonur á Húsavík steiktu 2300 kleinur um helgina

Kvenfélagskonur á Húsavík komu saman um helgina í tilefni 1. febrúar, sem er dagur kvenfélagskonunnar. Það er þriggja kvenna nefnd sem skipuleggur árlegan kleinugerðardag. Nefndina þetta árið skipuðu þær Emilía Harðardóttir, Helga Kristinsdóttir og Lilja Skarphéðinsdóttir. „Við seljum kleinur ávallt á laugardegi sem liggur hvað næst sjálfum deginum 1. …

Sýslumannsembættin sameinuð í eitt: Ítarleg umfjöllun um málið á morgun

Alþingi samþykkti síðdegis í dag frumvarp dómsmálaráðherra um að fækka sýslumannsembættum landsins úr níu í eitt. Lögin taka gildi 1. janúar 2027 og hefur ráðherra eitt ár til að undirbúa nýtt embætti með reglugerð, en ekki liggur fyrir hvar aðalskrifstofa þess verður staðsett. Samþykktin hefur þegar vakið miklar umræður, …

Miðlæg stjórnsýsla kallar á aukið vægi landsbyggða á Alþingi

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Norðurþings var rætt um áform stjórnvalda um breytingar á kosningalögum, en dómsmálaráðherra skipaði á síðasta ári starfshóp til að undirbúa frumvarpið, í þeim tilgangi að tryggja að atkvæði allra landsmanna vegi sem jafnast. Byggðarráð hafði áður gert einfalda bókun þar sem varað er við aukinni …

Sveitarstjóri fer yfir stærstu málefni á vettvangi Norðurþings

Í skoðanagrein sem birtist á Húsavík.com í dag fer Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings, yfir helstu verkefni og málefni sem voru til umfjöllunar á vettvangi sveitarfélagsins í janúar. Þar kemur fram að mánuðurinn hafi einkennst af óvenjulegri veðurblíðu, áframhaldandi framkvæmdum, öflugu velferðar- og skólastarfi og fjölbreyttum áskorunum í atvinnu- og …

Sigrún og Egill bjóða í Bóka-Retreat í kyrrð og sveitasælu í Skúlagarði

Það verða skörp skil milli vikna í Skúlagarð á næstunni: Þorrablót Keldhverfinga með stórdansleik og svo ‚bóka-retreat’ í kyrrð og sveitasælu. Bóka-Retreat er hugmynd sem kom upp í bókaklúbbi Sigrúnar Bjargar Aðalgeirsdóttur, eiganda Skúlagarðs, sem ber heitið Sæluvíma eftir samnefndu verki Lily King. Nokkrar í klúbbnum voru að detta …

Nemendur Borgarhólsskóla heimsóttu Þeistareykjarstöð

Á vef Borgarhólsskóla er sagt frá skemmtilegri heimsókn nemenda í 7. bekk í Þeistareykjarstöð nú í vikunni. „Viðfangsefni nemenda í náttúrugreinum um þessar mundir eru orka, orkugjafar og auðlindir. En Þeistareykjastöð var fyrsta jarðvarmavirkjunin sem Landsvirkjun reisti frá grunni. Heimsóknin er liður í verkefni Landsvirkjunar sem kallast Nám í …

Sögulegur sigur hjá karlaliði Völsungs og Eflingar í blaki

Karlalið Völsungs og Eflingar í blaki vann sögulegan sigur á liði KA-Splæsis í gærkvöldi í 8-liða úrslitum Kjörísbikarkeppni Blaksambands Íslands. Leikurinn fór fram í KA-heimilinu á Akureyri. Með sigrinum tryggði sameiginlegt lið Völsungs og Eflingar sér sæti í undanúrslitum Kjörísbikarsins í fyrsta skipti í sögu félagsins og jafnframt þátttökurétt …