Tilboð Icelandair í flug til Ísafjarðar langt yfir áætlun

Tilboð Icelandair í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Ísafjarðar er hátt í þrefalt hærra en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir. Icelandair var eina flugfélagið sem lagði fram tilboð í útboði á leiðinni. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 1,3 milljarða króna en tilboð Icelandair nam 3,5 milljörðum króna. Vegagerðin bauð út rekstur áætlunarflugsins …

Vestfirskt fyrirtæki snýr halla ríkissjóðs í afgang með 40 milljarða greiðslu

Fyrirtækið Kerecis frá Ísafirði mun í haust greiða 40 milljarða króna eingreiðslu í ríkissjóð Íslands vegna skattlagningar á kaupum móðurfélagsins Coloplast á hugverkaréttindum dótturfyrirtækisins. Um er að ræða eina stærstu einstöku skattgreiðslu sem íslenskt fyrirtæki hefur innt af hendi. Frá þessu er greint í nýbirtum árshlutareikningi félagsins. Samkvæmt fjárlögum …

Reykjanesbær vill kaupa hluta af lóð kísilversins í Helguvík

Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt kauptilboð sveitarfélagsins í hluta af lóð kísilversins í Helguvík. Með kaupunum vill sveitarfélagið skapa grundvöll fyrir nýja og vistvæna uppbyggingu á svæðinu. Á síðasta ári keypti byggingar- og þróunarfélagið Reykjanes Investment ehf. mannvirki og lóð kísilversins í Helguvík. Í kjölfarið bauð félagið sveitarfélaginu stóran hluta …

Óðinn Svan leiðir L-listann á Akureyri

Óðinn Svan Óðinsson, sem fyrr í dag tilkynnti að hann hyggðist hætta störfum sem frétta- og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, verður í 1. sæti L-listans í komandi bæjarstjórnarkosningum á Akureyri. Fréttavefurinn Akureyri.net greindi fyrst fyrst frá málinu. Óðinn Svan, sem er fjölmiðlafræðingur að mennt, hefur starfað hjá RÚV undanfarin sjö …

Ragnheiður nýr forseti Landssambands ungmennafélaga

Ragnheiður Geirsdóttir var kjörin nýr forseti Landssambands ungmennafélaga á sambandsþingi um síðastliðna helgi. Landssamband ungmennafélaga eru regnhlífarsamtök fyrir félagasamtök ungs fólks um allt Ísland og eru aðildarfélög 44 talsins, þar á meðal stúdentaráð HÍ, Samband íslenskra framhaldsskólanema, SAMFÉS, JCI á Íslandi og ungliðahreyfingar ýmissa stjórnmálaflokka. Í tilkynningu frá samtökunum …