Eysteinn Heiðar leiðir lista Framsóknar og félagshyggjufólks í Norðurþingi

Eysteinn Heiðar Kristjánsson, verkefnastjóri hjá HSN, er nýr oddviti Framsóknar og félagshyggjufólks í Norðurþingi fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí. Tilkynnt var um fjögur efstu sæti á listans á fundi Framsóknarfélags Þingeyinga í morgun. Í öðru sæti er Bylgja Steingrímsdóttir, sjúkraliði. Þriðja sætið skipar Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi á Hóli í …

Framboðsmálin: „Þegar Samfylkingin er orðin sexý þá kemur flokkseigendafélagið á fleygiferð“

„Þegar Samfylkingin er orðin sexý þá kemur flokkseigendafélagið á fleygiferð og ætlar að henda oddvitanum,“ segir einn heimildarmaður Húsavík.com sem telur illa vegið að oddvita flokksins, Benóný Val Jakobssyni. Húsavík.com hefur rætt við mikinn fjölda fólks í baklöndum framboðanna í Norðurþingi síðasta sólarhringinn um stöðu uppstillinga, menn og málefni. …

Stjórn Framsóknarfélags Þingeyinga falið að skipa uppstillingarnefnd

Framsóknarfélag Þingeyinga samþykkti á félagsfundi í gær að stillt verði upp á framboðslista B-lista vegna sveitarstjórnarkosninganna í Norðurþingi sem fara fram þann 16. maí. Þá var stjórn falið að skipa uppstillingarnefnd. „Það er mikill kraftur í starfi félagsins sem býður félagsfólki og íbúum öllum til samtals í hverri viku …