Krafa Gentle Giants á hafnasjóð Norðurþings nemur 91 milljón króna

Krafa Gentle Giants á hendur Hafnasjóði Norðurþings nemur rætt tæpri 91 milljón króna. Krafan var kynnt á fundi byggðarráðs Norðurþings í gær. „Stjórn Hafnasjóðs kemur saman í næstu viku til ræða viðbrögðin,“ segir Bergþór Bjarnason fjármálastjóri Norðurþings í samtali við Húsavík.com

Um er að ræða fjárhæð sem byggir á niðurstöðu og dómi Landsréttar, en Hæstiréttur hafnaði í janúar beiðni Hafnasjóðs Norðurþings um áfrýjunarleyfi. Þar með stendur dómur Landsréttar óhaggaður.

Sundurliðun kröfunnar

Samkvæmt yfirliti sem lagt var fram skiptist krafan þannig:
– Höfuðstóll kröfu vegna tímabilsins 2018–2023: 36.371.592 kr.
– Höfuðstóll vegna seinna tímabils 2023–2025: 27.863.806 kr.
– Vextir af báðum tímabilum: 23.451.830 kr.
– Málskostnaður með dráttarvöxtum: 3.100.333 kr.

Samtals nemur krafan því  rætt tæpri 91 milljón króna. Líkt og áður hefur verið greint frá taldi Landsréttur Hafnasjóð Norðurþings ekki hafa haft heimild til að innheimta farþegagjald með þeim hætti sem gert var á árunum 2016 til 2023. Fyrirtækið Gentle Giants tapaði málinu í héraði en hafði betur í Landsrétti. Stjórn Hafnasjóðs samþykkti í nóvember að sækja um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar, með þeim rökum að málið varðaði grundvöll og aðferðafræði gjaldtöku opinberra hafna um land allt og kynni að hafa fordæmisgildi. Hæstiréttur hafnaði beiðninni 21. janúar.

„Þetta mál er allt runnið undar rifjum fyrrum sveitarstjóra og lögmanns Norðurþings,“ sagði Stefán Guðmundsson þegar blaðamaður náði tali af honum, en Stefán er þessa vikuna staddur í Bretlandi í tengslum við verðlaunaafhendingu til Fish & Chips Lake Mývatn sem sagt var frá hér á vefnum fyrr í vikunni.