Sveitarfélögin Norðurþing og Þingeyjarsveit stóðu fyrir veglegri móttöku fyrir eigendur Fish & Chips Lake Mývatn í Sjóminjasafninu á Húsavík síðdegis í dag, í tilefni af glæsilegum sigri fyrirtækisins á alþjóðlegri veitingakeppni í London.
Fish & Chips Lake Mývatn vann nýverið verðlaunin International Fish and Chips Operator of the Year á The National Fish and Chips Awards 2026, sem fram fór á Park Plaza Westminster Bridge í London. Verðlaunin eru veitt af National Federation of Fish Friers og teljast meðal þeirra virtustu í heimi á sviði fiskrétta.
Við móttökuna á Húsavík voru eigendur og starfsfólk staðarins heiðruð fyrir þennan árangur, en fjölmargir gestir mættu til að fagna með þeim. Meðal þeirra var Jón Páll Kristófersson frá Ísfélaginu, sem gerir út skipið Sólbergið, en þaðan fær veitingastaðurinn allan sinn fisk. Einnig mættu fulltrúar frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Sigurinn er stór viðurkenning fyrir ungt fyrirtæki í Mývatnssveit, en Fish & Chips Lake Mývatn opnaði árið 2022 og hefur á skömmum tíma skapað sér sterka stöðu meðal bæði heimamanna og ferðamanna.
Verðlaunin sem fyrirtækið hlaut í London eru veitt þeim stað sem þykir standa sig best utan Bretlands í gerð hins klassíska réttar, fish and chips, og undirstrika bæði gæði íslensks hráefnis og fagmennsku þeirra sem standa að rekstrinum.
Húsavík.com óskar eigendum og starfsfólki Fish & Chips Lake Mývatn enn á ný til hamingju með þennan eftirminnilega árangur.

