Vilhjálmur aftur til liðs við Háskólann á Bifröst

Dr. Vilhjálmur Egilsson hefur tekið við starfi ráðgjafa stjórnar og rektors Háskólans á Bifröst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum.

Í nýju hlutverki mun Vilhjálmur veita stjórn háskólans ráðgjöf um þau verkefni sem fram undan eru. Starfið snýr meðal annars að því að efla samstöðu meðal starfsmanna, vinna að fjármögnun skólans og gerð rekstraráætlana, auk þess að koma að þróun gæðastarfs og stefnumótunar.

Vilhjálmur gegndi áður starfi rektors Háskólans á Bifröst á árunum 2013 til 2020. Hann hefur jafnframt starfað sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu og setið í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Talsverð ólga hefur verið innan Háskólans á Bifröst undanfarnar vikur. Í janúar lýsti félag akademískra starfsmanna yfir vantrausti á þáverandi rektor, Margréti Jónsdóttur Njarðvík. Í kjölfarið baðst hún lausnar frá starfi og hefur Ólína Þorvarðardóttir tekið við sem starfandi rektor.