Ágúst Sigurður Óskarsson í öðru sæti M-lista Samfélagsins

Ágúst Sigurður Óskarsson ráðgjafi og atvinnulífstengill hjá Virk starfsendurhæfingarsjóði og sjúkraflutningamaður, mun skipa í 2. sæti á M-Lista Samfélagsins í Norðurþingi. Ágúst sagði í samtali við Húsavík.com að hann hafi fengið áskoranir sem hann taki með þökkum og muni stoltur taka sæti með þessum hópi. „M-Listi Samfélagsins er breiðfylking óháðra, félagshyggjufólks og Miðflokksfólks í Norðurþingi,“ segir Ágúst. Ágúst hefur mikið verið í fréttum undanfarið vegna baráttu fyrir leiðréttingu á launagreiðslum innan Slökkviliðs Norðurþings.

Í tilkynningu frá framboðinu sem barst nú rétt fyrir hádegi segir að ,ikill fengur sé af reynslu og þekkingar Ágústs. „Hann hefur góða menntun og reynslu úr stjórnsýslu og atvinnulífi. Hann var í 10 ár formaður Yfirkjörstjórnar Norðurþings, var skrifstofustjóri Framsýnar – stéttarfélags og annarra stéttarfélaga, ráðgjafi hjá Félags- og skólaþjónustu Norðurþings og hefur s.l. 15 ár starfað sem ráðgjafi og atvinnulífstengill hjá Virk – starfsendurhæfingarsjóði og hefur sinnt störfum fyrir þá um allt land. Hann hefur einnig verið virkur í íþrótta og tómstundastarfi í Norðurþingi,“ segir í tilkynningunni.

Ágúst er giftur Júdit Ölmu Hjálmarsdóttur félagsliða á HSN Hvammi og eiga þau 3 uppkomin börn og 6 barnabörn.