Baldur Einarsson prentsmiður og portrettlistamaður látinn

Baldur Einarsson, prentsmiður, skopmyndateiknari og portrettlistamaður á Húsavík er látinn, 77 ára að aldri. Baldur fæddist á Húsavík þann 11. ágúst 1948, en hann lést þann 18. febrúar síðastliðinn. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey.

Baldur starfaði lengi vel hjá prentsmiðjunni Örk við útgáfu Víkurblaðsins og Skarps, héraðsfréttablaðanna í Þingeyjarsýslum. Hann gaf út hina vinsælu bók Höfuðlausnir og setti einnig upp sýningu skop- og portrettmynda sem nefndist Þingeyingar í Spéspegli í Safnahúsinu á Húsavík sumarið 2015.

Foreldrar Baldurs voru Sólveig Bergþóra Þorsteinsdóttir og Einar Methúsalem Jóhannesson. Baldur kvæntist Kristjönu J. Stefánsdóttur árið 1972 og eiga þau 4 börn, þau Hall, Maríu Sædís, Ara Brján og Róbert Hlyn.