Framboðsmálin: „Þegar Samfylkingin er orðin sexý þá kemur flokkseigendafélagið á fleygiferð“

„Þegar Samfylkingin er orðin sexý þá kemur flokkseigendafélagið á fleygiferð og ætlar að henda oddvitanum,“ segir einn heimildarmaður Húsavík.com sem telur illa vegið að oddvita flokksins, Benóný Val Jakobssyni. Húsavík.com hefur rætt við mikinn fjölda fólks í baklöndum framboðanna í Norðurþingi síðasta sólarhringinn um stöðu uppstillinga, menn og málefni.

Mörg þeirra sem við ræddum við segja Benóný Val hafa unnið þrekvirki fyrir fjórum árum þegar hann náði inn fulltrúa í sveitarstjórn þegar Samfylkingin var í mótvindi og að hann hafi haldið starfinu gangandi allt kjörtímabilið. Aðrir telja hins vegar að tími sé kominn á ný andlit og aukið vægi Samfylkingarinnar nú þegar flokkurinn leiðir ríkisstjórnarsamstarf og setja stefnuna á tvo fulltrúa. Staða mála ætti að skýrast í fyrramálið á fundi Samfylkingarinnar. Húsavík.com hefur heimildir fyrir því að uppstillingarnefnd hafi fundað með mögulegum oddvitaefnum síðustu daga.

Þá hefur vefurinn mjög áreiðanlegar heimildir fyrir því að Eysteinn Heiðar Kristjánsson verði nýr oddviti Framsóknarflokksins, eftir að Hjálmar Bogi tilkynnti brotthvaf sitt um síðustu helgi. Félagsfundur er boðaður nú um helgina þar sem línur munu skýrast. Einnig er talið líklegt að sterkur frambjóðandi af austursvæði sveitarfélagsins skipi þriðja sæti listans, sem líklega verður baráttusæti Framsóknar nú.

Elín Guðmundsdóttir, bókari hjá Enor og áður eigandi Pizza Kofans, hefur verið sterklega orðuð við þriðja sæti M-lista Samfélagsins, en í gær var tilkynnt að Ágúst Sigurður Óskarsson myndi verma annað sæti listans. Þá er samkvæmt heimildum búið að manna tvö efstu sæti nýs vinstri framboðs; Aldey Unnar Traustadóttir sveitarstjórnarfulltrúi muni leiða listann og Salbjörg Matthíasdóttir er talin líkleg í annað sæti framboðsins. Nafn Nönnu Steinu Höskuldsdóttur hefur verið áberandi í umræðunni og heimildir herma að flest framboð hafi boðið henni sæti ofarlega á lista, en hún staðfesti í samtali við Húsavík.com að hún muni ekki gefa kost á sér í vor.