Norðurþing og E-Valor hafa undirritað viljayfirlýsingu um að kanna möguleika á uppbyggingu sjálfbærrar rafeldsneytisframleiðslu á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík. Verkefnið er fyrirhugað í þremur áföngum og miðar að framleiðslu allt að 100.000 tonna af rafeldsneyti á ári þegar fullum afköstum verður náð.
Bergþór Bjarnason, fjármálastjóri Norðurþings, segir verkefnið marka mikilvægt framhald í uppbyggingu á Bakka. „Þessi viljayfirlýsing er skýrt skref í átt að frekari fjölbreytni og verðmætasköpun á Bakka. Við sjáum hér tækifæri til að byggja upp sjálfbæra atvinnustarfsemi sem styður við orkuskipti og styrkir tekjugrunn sveitarfélagsins til lengri tíma,“ segir Bergþór í samtali við Húsavík.com.

