Barátta Tjörnesinga skilar sér: Ráðherra hættur við lágmarks íbúafjölda í sveitarfélögum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi að nýjum sveitarstjórnarlögum á Alþingi. Með frumvarpinu eru lagðar til víðtækar breytingar á gildandi lögum, en ráðherrann hefur jafnframt fallið frá fyrri hugmyndum um að setja á lágmarksíbúafjölda í sveitarfélögum landsins.

Málið hefur verið mikið til umræðu á Norðausturlandi undanfarna mánuði, ekki síst vegna baráttu Tjörneshrepps fyrir áframhaldandi tilvist sinni sem sveitarfélags. Sú umræða og baráttuþrek hreppsnefndar hefur vakið athygli víða um land og má telja líklegt að hún hafi haft áhrif á ákvörðun ráðherra um að falla frá lágmarksfjöldanum.

Aðalsteinn J. Halldórsson, oddviti Tjörneshrepps, segist hissa á vendingunum. „Þetta kemur mjög á óvart. Ég átti ekki von á því að neitt gerðist fyrr en eftir kosningar úr þessu, en ráðherrann hefur sjálfsagt metið það sem svo að betra væri að setja frumvarpið fram með þessum hætti og eiga þá möguleika á því að fá það samþykkt, en að vera með umdeildustu greinarnar með í pakkanum áfram og lenda í óþarfa erfiðleikum með þetta mál,“ sagði Aðalsteinn í samtali við Húsavík.com.

Fyrr í dag fjallaði Húsavík.com um íbúafund sem fram fór í félagsheimilinu Sólvangi á Tjörnesi um helgina þar sem rætt var um hvernig ráðstafa eigi tæplega 250 milljónum króna sem sveitarfélagið fékk úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna fólksfækkunar, en ósk sveitarfélagsins um að skila styrknum var hafnað.

> Sjá einnig: Íbúar á Tjörnesi ræddu ráðstöfun milljóna sem þau fengu ekki að skila

Í fréttatilkynningu á vef Stjórnarráðsins í dag kemur fram að markmið frumvarpsins sé að styrkja sveitarstjórnarstigið á Íslandi og tryggja að sveitarfélög um allt land séu öflug og sjálfbær.

„Tilgangur með endurskoðun sveitarstjórnarlaganna er að skapa betri forsendur fyrir öflug og sjálfbær sveitarfélög. Rannsóknir sýna að þjónusta við íbúa er almennt betri og skilvirkari í fjölmennari sveitarfélögum. Stærðarhagkvæmni er óumdeilanleg upp að vissu marki þegar kemur að rekstri grunnþjónustu sveitarfélaga. Framtíð sveitarstjórnarstigsins á Íslandi felst því í stærri stjórnsýslueiningum með fleiri en einum byggðakjarna,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.