Framboðsmál: Líkur á sex framboðum í Norðurþingi

Útlit er fyrir að sex framboð muni bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum í Norðurþingi í vor. Ef þau ná öll tilskyldum fjölda frambjóðenda og meðmælenda verða 108 frambjóðendur á kjörseðlinum eða um 3% íbúa sveitarfélagsins. Það verður að teljast ágætis afrek að manna svo marga lista í fámennu samfélagi.

Framboðsmálin eru hratt að skýrast þessa dagana og líkur eru á að Ó-listinn tilkynni allan lista sinn um helgina. Þá hefur Húsavík.com heimildir fyrir því að nýtt vinstra framboð fundi á þriðjudag og er tíðinda að vænta í kjölfarið. Einn forsvarsmanna framboðsins hefur sagt að listi þeirra verði kynntur allur í einu. Ef af nýju framboði á vinstri væng verður má telja hverfandi líkur á að Vinstri græn bjóði fram í Norðurþingi. Þá munu Flokkur fólksins, Viðreisn og Píratar, sem öll eru virk og starfandi stjórnmálasamtök á landsvísu, ekki bjóða fram í sveitarfélaginu.

Enn er verið að ræða mögulega frambjóðendur og hefur nafn Brynjars Baldurssonar, framkvæmdastjóra Heimamanna, verið í talsverðri umræðu síðustu daga. Hefur hann bæði verið nefndur við blaðamann sem mögulegur frambjóðandi fyrir Framsókn og Miðflokk. Brynjar vildi ekki gefa neitt uppi þegar blaðamaður ræddi við hann síðdegis í dag, en sagði að frétta væri að vænta á næstu dögum.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur boðað fund í kvöld og má búast við að listi flokksins verði tilkynntur þar. Þá er búið að tilkynna oddvita hjá Framsóknarflokki og Miðflokki. Búist er við að Samfylkingin tilkynni sinn oddvita eftir helgi, og Ó-listinn um helgina eins og áður sagði.