Skráning í Sel Hotel Mývatn & Mývatn Öl skákmótið sem fram fer 19-22 nóvember í Skjólbrekku í Mývatnssveit, fer vel af stað. Skráning hófst 1. mars og eru þegar 13 skákmenn skráðir í mótið, þó að um 8 mánuðir séu þar til mótið hefst. Af þessum 13 skákmönnum eru 4 stórmeistarar og 3 alþjóðlegir meistarar.
Íslandsmeistarinn í skák 2025, stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson, er stigahæsti skráði skákmaðurinn í mótið. (2511). Enski stórmeistari Simon Williams (2443), stórmeistarinn Þröstur Þórhallsson (2388) og stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson (2377) eru einnig skráðir í mótið.
Að auki eru þrír alþjóðlegir meistarar skráðir í mótið, Dagur Ragnarsson, Björn Þorfinnsson og Davíð Kjartansson. Allir þessir skákmenn voru með á afmælismóti Goðans í mars 2025, nema Vignir Vatnar, sem komst ekki á mótið í fyrra.
Reiknað er með um 50 keppendum á mótið en við erum búnir undir að hugsanlega mæti 70-80 keppendur. Það er nægt pláss í Skjóbrekku fyrir mun fleiri en það, þó mjög ólíklegt sé að 70-80 keppendur taki þátt í mótinu.
En maður veit aldrei.

