Stormur er hundur mánaðarins í mars hjá Félagi Hundaeigenda á Húsavík. Hann verður 3 ára þann 28.mars nk. og er Coton de Tulear, skráður hjá Norðurþingi. Eigendur Storms eru Sigrún Edda Kristjánsdóttir og Kári Ólfjörð Ásgrímsson.
Coton de Tulear er lítil og einstaklega félagslynd hundategund sem á uppruna sinn á Madagaskar. Nafnið „Coton“ vísar í mjúkan og bómullarlegan feld tegundarinnar. Coton hundar eru þekktir fyrir glaðlegt skap, mikla tryggð og nána tengingu við sitt fólk. Þeir eru greindir, næmir á umhverfið sitt og oft mjög tjáningarríkir í samskiptum, stundum meira eins og þeir séu að spjalla en gelta.
Stormur er einmitt þannig hundur. Hann er matmikill miðað við stærð sína og elskar allra best kæfu. Stundum fær hann einnig reykt kjöt í hófi sem sérstakt góðgæti.
Eins og margir Coton hundar er Stormur mikill spjallari. Hann geltir vissulega stundum, en notar líka alls konar hljóð til að tjá sig, ef honum mislíkar eitthvað, ef hann vill fá athygli eða jafnvel þegar hann virðist vilja segja frá deginum sínum.
Hundasvæðið á Húsavík er einn af uppáhaldsstöðum Storms og var hann fljótur að læra að rata þangað. Þó svo að þar sé þrautabraut notar Stormur hana ekki mikið. Hann kýs frekar að þefa upp öll skilaboðin sem aðrir hundar skilja eftir sig á lyktarslóðum. Jafnvel þegar aðrir hundar mæta á svæðið heldur Stormur sig oft við þefverkefnin sín, það er hans ánægja.
Stormur á þó góðan vin, hann Bósa, sem er í svipuðum stærðarflokki. Þeir félagar ná vel saman og eiga góðar stundir. Stormur elskar líka að fara í reipitog og er Kári hans helsti leikfélagi í slíkum leikjum. Þegar Stormur vill hins vegar rólegri stundir leitar hann gjarnan til Sigrúnar í góðan kúr.
Stormur elskar börn og virðist hafa góða tilfinningu fyrir stærð þeirra. Hann ber virðingu fyrir þeim og fer varlega í samskiptum. Stormur nýtur þess einnig að fara í dekur til Ólafsfjarðar, þar sem hann fer stundum í pössun til ömmu sinnar og afa. Þar eru miklir dýravinir og Stormur fær alla þá athygli og hlýju sem hann kann svo vel að meta.
Eigendur Storms sjá sjálfir um feldhirðuna, sem er mikilvæg hjá Coton de Tulear þar sem feldurinn þarf reglulega greiðslu og snyrtingu. Sigrún hefur áður haft reynslu af hundum sem þurfa feldumhirðu og á bæði hundaklippur og rakvél. Stormur fær því snyrtingu á um það bil þriggja mánaða fresti. Þegar ég kom til að taka viðtalið var Stormur nýklipptur og greinilega mjög montinn með sig.
Stormur elskar kúr og lætur sig gjarnan troða sér á milli hjónanna í sófanum þar sem hann vill helst liggja í góðri kremju. Þegar kvöldið kemur og farið er að sofa er hann þó ekki eins áhugasamur um að fara upp í rúm þegar Kári kemur, þá kýs Stormur frekar að hafa sitt eigið pláss.
Stormur er skemmtileg blanda af spjalli, þefvinnu og mikilli ást á sínu fólki, sannkallaður fulltrúi sinnar tegundar og verðugur Hundur mars mánaðar á Húsavík.









