Indriði Indriðason ættfræðingur: Skrifaði fyrstu bókina á viku

Þann 17. apríl árið 2008 varð Indriði Indriðason ættfræðingur og rithöfundur 100 ára. Af því tilefni tók Örlygur Hnefill meðfylgjandi viðtal og ljósmyndir sem birtust í Fréttablaðinu á aldar afmæli hans: Indriði Indriðason, rithöfundur og ættfræðingur, fæddist að Ytra-Fjalli í Aðaldal 17. apríl 1908. Hann fagnar því hundrað ára …

Efla upplýsingaöryggi eldri borgara: „Afar ánægð með samstarf við Sparisjóðina“

Sparisjóðirnir og Símenntun Háskólans á Akureyri hafa tekið höndum saman um samfélagsverkefni sem miðar að því að efla upplýsingaöryggi eldri borgara. Boðið verður upp á aðgengilega fræðslu um helstu hættur á netinu og notkun snjalltækja, þar sem áhersla er lögð á að þekkja svik, verjast blekkingum og nota tæknina …

Húsvíkingurinn Patrekur Gunnlaugsson ráðinn yfirþjálfari Arena

Arena Gaming hefur, í samstarfi við rafíþróttadeildir Breiðabliks, HK, FH og Fylkis, ráðið Húsvíkinginn Patrek Gunnlaugsson í starf yfirþjálfara. Í samtali við Húsavík.com segir Patrekur tilfinninguna að taka við þessu starfi ótrúlega góða. „Ég hef lengi viljað stækka og bæta rafíþróttastarfið hér á Íslandi, og Arena er einfaldlega frábær …

Helguskúr horfinn

Helguskúr er nú horfinn af hafnarsvæðinu á Húsavík eftir niðurrif síðustu daga. Vinna hófst á mánudag þegar svæðið var girt af, og á þriðjudag voru gluggar og annað lauslegt fjarlægt af húsinu. Á þriðjudag og miðvikudag var unnið að því að tæma húsið og á fimmtudag var byrjað að …

Sjö fulltrúar í sveitarstjórn vilja vindorkuverkefni á Hólaheiði fært úr biðflokki

Rætt var um vindorkuverkefni á Hólaheiði, svokallaðs Hnotasteins, á fundi sveitarstjórnar Noðurþings sem fór fram á Kópaskeri í gær. Verkefnið er sem stendur í biðflokki í rammaáætlun stjórnvalda. Virkjunarkosturinn er staðsettur á jörðum Katastaða, Presthóla og Efri-Hóla. Gert er ráð fyrir allt að 34 vindmyllum með heildarafl allt að …