Fjórar viljayfirlýsingar hafa verið undirritaðar vegna fyrirhugaðrar starfsemi á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík og fleiri fyrirtæki hafa sýnt svæðinu áhuga. Björn Gíslason verkefnastjóri atvinnuuppbyggingar á Bakka segir í samtali við RÚV í dag að vonir standi til þess að einhver ný starfsemi geti hafist á næstu tólf til átján mánuðum, en Björn ræddi í viðtali við Amöndu Guðrúnu Bjarnadóttur fréttamann RÚV um horfur og væntingar til uppbyggingar á svæðinu.
Björn hóf störf sem verkefnastjóri atvinnuuppbyggingar á Bakka nú um áramót eins og greint var frá í frétt á Húsavík. com nýverið, en er starfið hlut af viðbrögðum stjórnvalda og sveitarstjórnar eftir að starfsemi PCC á svæðinu lagðist að mestu niður og farið var að horfa til nýrra tækifæra. „Mitt hlutverk er að fylgja eftir þeim hugmyndum og verkefnum sem fyrirtæki hafa sýnt áhuga á að byggja upp á Bakka og styðja við þau fyrirtæki og þá fjárfesta sem eru á bakvið þau. Sömuleiðis að reyna að þróa og samhæfa iðnaðarsvæðið við þá sýn sem hefur verið gert fyrir það,“ segir Björn Gíslason í viðtali við RÚV.
Iðnaðarsvæðið á Bakka spannar um 200 hektara og hefur verið skipulagt með fjölbreytta starfsemi í huga. Samkvæmt Birni hafa viljayfirlýsingar verið undirritaðar við fjögur fyrirtæki. „Það er búið að skrifa undir viljayfirlýsingar við fjögur fyrirtæki. Það eru Gíga42 sem hafa áhuga á að reka gagnaver á Bakka, það er undirbúningsfélag sem kallar sig Bakkavík fiskeldi sem hefur áhuga á að fara í landeldi á laxi, það er Carbfix sem hefur starfað að föngun á koltvísýringi og niðurdælingu á honum og svo er það Heidelberg sem stefnir á að vinna malað móberg til útflutnings og íblöndunar í sement,“ segir Björn.
Að sögn Björns eru þó fleiri fyrirtæki að skoða möguleika á starfsemi á Bakka. „Það eru af ýmsum toga en þar á meðal eru líklega ein þrjú til fjögur gagnaversverkefni og svo þrjú til fjögur iðnfyrirtæki á mismunandi sviðum,“ segir hann. Vonir standi til þess að fyrstu skref nýrrar atvinnustarfsemi á svæðinu verði tekin innan næstu missera.


