Ferðaþjónustufyrirtækið Fjallasýn hefur tekið við rekstri landsbyggðarstrætó á norður- og norðausturlandi. Tók fyrirtækið formlega við verkefninu um áramót eftir útboð, þar sem Fjallasýn átti lægsta tilboðið. Framkvæmdastjóri segir fyrirtækið hafa leitað öruggra verkefna fyrir sitt starfsfólk vegna fyrirsjáanlegs samdráttar í komum skemmtiferðaskipa næstu ár eftir miklar og tíðar breytingar á skattaumhverfi greinarinnar.
Í samtali við Húsavík.com segir Rúnar Óskarsson, framkvæmdastjóri Fjallasýnar, að útboðið hafi náð yfir allt svæðið og ekki hafi verið boðið upp á að sækja um minni hluta þess. „Það var ekki hægt að bjóða í minna svæði. Hefðum kannski valið minna svæði ef það hefði verið í boði, en við erum með þetta svæði, norður- og norðausturlandið,“ segir Rúnar.
Samkvæmt honum verða þrjár ferðir á dag virka daga frá Húsavík og tvær ferðir á sunnudögum. Sama fyrirkomulag gildir á Siglufirði, þó með einni ferð á sunnudögum. Á vetrartíma verða fjórar ferðir á viku frá Egilsstöðum, og eru því þrír bílar sem leggja af stað frá Fjallasýn alla morgna.
Kallar á fjölgun starfsfólks
Verkefnið kallar á fjölgun starfsmanna. „Þetta er töluvert af nýju starfi frá Húsavík og Siglufirði, en á vetrartíma get ég keyrt Egilsstaðaleiðina með einum manni,“ segir Rúnar. Hann áætlar að um sex störf skapist yfir sumartímann, auk umsýslu, skipulagningar og vinnu við bílana sjálfa.
Rúnar undirstrikar jafnframt að verkefnið sé krefjandi, ekki síst þar sem tekið er við því á dimmasta tíma ársins. „Við erum að taka við þessu þegar veður eru hvað vályndust og þurfum að vanda okkur eins og við gerum alltaf,“ segir hann.

Aðspurður um ástæður þess að Fjallasýn leitaði í þetta verkefni nefnir Rúnar erfiðar aðstæður í ferðaþjónustu. „Það er búið að valda ferðum skemmtiferðaskipa miklu tjóni með vanhugsuðum aðgerðum stjórnvalda og við fórum því að leita að öðrum verkefnum fyrir okkar fólk.“
Fjallasýn er rótgróið fjölskyldufyrirtæki í ferðaþjónustu sem hóf starfsemi árið 1982 með skólaakstri úr heimabyggð og hefur síðan byggt upp sérhæfingu í akstri og skipulagningu ferða, með sérstaka áherslu á Norðausturland. Fyrirtækið þjónustar bæði einstaklinga og hópa, sinnir dagsferðum og lengri ferðum, útvegar leiðsögumenn þegar þess er óskað og hefur á síðari árum aukið þjónustu við skemmtiferðaskip á Norðausturlandi, en nú sér fram á samdrátt í komum þeirra vegna tíðra skattkerfisbreytinga.

