Himininn yfir Húsavík baðaður norðurljósum í kvöld

Áhugafólk um himingeiminn og fegurð náttúrunnar ætti sannarlega að taka sér stund til að líta upp í kvöld, því himininn yfir Húsavík er baðaður norðurljósum, bæði yfir flóanum frá bænum séð og einnig er fjallið upp ljómað af ljósadýrð himinsins. Norðurljósin hefa sést víða yfir bænum og Skjálfanda í kvöld. Við tökum á móti myndum frá lesendum Húsavík.com á netfangið frettir@husavik.com

Sævar Helgi Bragason, ritstjóri Stjörnufræðivefsins, segir að kvöldið og nóttin gætu lofað góðu á Húsavík. „Það er gott útlit fyrir fleiri hviður í kvöld hjá ykkur fyrir norðan,“ segir Sævar í samtali við vefinn. Það má fylgjast með mælingum og sjá spá á vefsíðunni icelandatnight.is/is

Meðfylgjandi ljósmynd er frá bandarísku geimvísindastofnuninni NASA og sýnir útsýni geimfara niður á norðurljósin úr Alþjóðlegu geimstöðinni.