Tilboð Icelandair í flug til Ísafjarðar langt yfir áætlun

Tilboð Icelandair í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Ísafjarðar er hátt í þrefalt hærra en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir. Icelandair var eina flugfélagið sem lagði fram tilboð í útboði á leiðinni. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 1,3 milljarða króna en tilboð Icelandair nam 3,5 milljörðum króna.

Vegagerðin bauð út rekstur áætlunarflugsins til fjögurra ára, frá 1. september í haust til 31. ágúst 2030, með möguleika á framlengingu samningsins um eitt ár til viðbótar. Útboðið var kynnt 23. janúar og tilboð voru opnuð í fyrradag.