Helena Eydís Ingólfsdóttir leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi

Helena Eydís Ingólfsdóttir mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þetta var ákveðið rétt í þessu á félagsfundi Sjálfstæðisfélaganna í Norðurþingi sem nú stendur yfir í sal Framsýnar á Húsavík.

Helena hefur tvisvar áður verið í framvarðasveit flokksins í sveitarstjórnarkosningum. Hún skipaði 2. sæti listans árið 2018 þegar hún var fyrst kjörin í sveitarstjórn og aftur 2. sæti í kosningunum árið 2022. Á báðum kjörtímabilum hefur það fallið í hennar skaut að stíga inn sem oddviti flokksins hluta kjörtímabilsins. Á yfirstandandi kjörtímabili hefur hún gegnt formennsku í byggðarráði Norðurþings.

Sjálfstæðisflokkurinn er fyrstur til að tilkynna lista í heild fyrir komandi kosningar. Í öðru sæti listans er Þorsteinn Snævar Benediktsson bruggmeistari og eigandi Húsavík Öl og í þriðja sæti er Kristján Friðrik Sigurðsson fiskeldisfræðingur. Sjálfstæðisflokkurinn fékk tvo fulltrúa kjörna í sveitarstjórn Norðurþings í kosningunum 2022.

 

Listin Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi 2026

1. Helena Eydís Ingólfsdóttir – sveitarstjórnarfulltrúi og verkefnastjóri
2. Þorsteinn Snævar Benediktsson – atvinnurekandi og bruggmeistari
3. Kristján Friðrik Sigurðsson – fiskeldisfræðingur
4. Guðrún Þóra Hallgrímsdóttir – þjónustustjóri
5. Guðni Már Kjartansson – atvinnurekandi
6. Birna Íris Barkardóttir – hótelstjóri
7. Þórður Sigmundur Sigmundsson – viðhaldsstjóri og smiður
8. Arna Ýr Arnarsdóttir – fjármála og áfangastjóri
9. Stefán Jón Sigurgeirsson – verkefnastjóri
10. Áslaug Guðfinna Friðfinnsdóttir – kennari
11. Baldur Baldvinsson – starfsmaður vöruhúss
12. Erna Sigríður Hannesdóttir – kennari
13. Elmar Örn Guðmundsson – stuðningsfulltrúi og þjálfari
14. Anna Björg Leifsdóttir – ráðgjafi í málefnum barna og fjölskyldna
15. Magnús Máni Sigurgeirsson – háskólanemi
16. Anna Rósa Magnúsdóttir – næringarrekstrarfræðingur
17. Oddur Vilhelm Jóhannsson – útgerðarmaður
18. Stella Borgþóra Þorláksdóttir – heiðurskona