Íbúafundur fór fram í félagsheimilinu Sólvangi á Tjörnesi um helgina þar sem rætt var um hvernig ráðstafa eigi tæplega 250 milljónum króna sem sveitarfélagið fékk úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna fólksfækkunar. Að sögn Aðalsteins J. Halldórssonar, oddvita Tjörneshrepps, var mæting afar góð og flestir íbúar hreppsins mættir á fundinn.
„Það var afar góð mæting og margar hugmyndir ræddar. Ekkert var ákveðið á fundinum en íbúar tóku þó þátt í skoðanakönnun um næstu skref,“ sagði Aðalsteinn í samtali við Húsavík.com. Hann segir að áhugi hafi einkum beinst að einhvers konar innviðauppbyggingu í hreppnum, þó að nokkrar mismunandi hugmyndir hafi verið nefndar í því samhengi. Hreppsnefnd muni fara yfir niðurstöður fundarins og hugmyndir íbúanna síðar í mánuðinum.
Á fundinum var einnig heiðruð Margrét Bjartmarsdóttir sem lét af störfum hjá hreppnum um síðustu áramót eftir margra áratuga starf. Henni var afhent málverk eftir Huldu Ellý Jónsdóttur listakonu frá Kvíslarhóli.
Kvenfélagið Aldan sá um veitingar á fundinum sem Aðalsteinn segir að hafi verið frábærar og þeim gerð góð skil.
Vildu afþakka framlagið
Tjörneshreppur fékk árið 2025 tæplega 250 milljónir króna að styrk úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga í svokölluðu fólksfækkunarframlagi, sem er mjög há upphæð fyrir sveitarfélag með um 60 íbúa.
Hreppsnefnd samþykkti í október í fyrra að afþakka framlagið og taldi upphæðina óraunhæfa miðað við stærð sveitarfélagsins. Síðar kom hins vegar fram að ekki væri hægt að skila fénu.
Samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum ber sveitarfélaginu því að verja fjármununum til uppbyggingar innan hreppsins. Fundurinn á laugardag var liður í því að kalla eftir hugmyndum og sjónarmiðum íbúa áður en ákvörðun verður tekin um næstu skref.
Ljósmynd: Hörður Jónasson

