Í síðustu viku var kjördæmavika á Alþingi, en þá eru ekki haldnir þingfundir og þingmenn nýta tímann til að heimsækja kjördæmin og funda með íbúum og stofnunum.
Fjöldi þingmanna og ráðherra heimsótti Húsavík í vikunni og voru haldnir hér fjölmennir fundir um ýmis málefni sem snerta svæðið.
Á þriðjudag heimsóttu þingmenn og ráðherrar Viðreisnar Framhaldsskólann á Húsavík þar sem þeir fengu kynningu á starfi skólans og húsakynnum hans. Einnig gáfu gestirnir sér tíma til að spjalla við nemendur og starfsfólk. Sama dag heimsóttu þingmenn Miðflokksins skólann.
Á meðfylgjandi ljósmynd af vef Framhaldsskólans á Húsavík eru ásamt nemendum og skólameistara þau Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra, auk þingmannanna Gríms Grímssonar og Ingvars Þóroddssonar úr Norðausturkjördæmi.

