Sjö fulltrúar í sveitarstjórn vilja vindorkuverkefni á Hólaheiði fært úr biðflokki

Rætt var um vindorkuverkefni á Hólaheiði, svokallaðs Hnotasteins, á fundi sveitarstjórnar Noðurþings sem fór fram á Kópaskeri í gær. Verkefnið er sem stendur í biðflokki í rammaáætlun stjórnvalda. Virkjunarkosturinn er staðsettur á jörðum Katastaða, Presthóla og Efri-Hóla. Gert er ráð fyrir allt að 34 vindmyllum með heildarafl allt að …

Kristján Örn og Harðarbörn kaupa Gamla Bauk af Norðursiglingu

Nýr kafli er hafinn í sögu veitingastaðarins Gamla Bauks á Húsavík, en þau Kristján Örn Sævarsson, Þórunn Harðardóttir, Heimir Harðarson og Hildur Harðardóttir hafa ásamt mökum keypt allan húsakost Bauksins af Norðursiglingu. Húsavík.com ræddi við Kristján Örn þar sem hann var á fleygiferð við undirbúning Þorrablótsins, sem fer fram …

Frárennsli frá sláturhúsinu nýtt í stað þess að renna ómeðhöndlað til sjávar

Orkuveita Húsavíkur vinnur nú að tilraunaverkefni sem miðar að bættri meðhöndlun frárennslis frá sláturhúsi Kjarnafæðis Norðlenska á Húsavík. Verkefnið er hluti af LIFE Icewater verkefninu sem er stutt af Evrópusambandinu og er unnið í samstarfi við EIM og fleiri aðila á svæðinu. „Verkefnið er hluti af LIFE Icewater sem …

Leituðu öruggra verkefna fyrir sitt fólk eftir vanhugsaðar aðgerðir gegn skemmtiferðaskipum

Ferðaþjónustufyrirtækið Fjallasýn hefur tekið við rekstri landsbyggðarstrætó á norður- og norðausturlandi. Tók fyrirtækið formlega við verkefninu um áramót eftir útboð, þar sem Fjallasýn átti lægsta tilboðið. Framkvæmdastjóri segir fyrirtækið hafa leitað öruggra verkefna fyrir sitt starfsfólk vegna fyrirsjáanlegs samdráttar í komum skemmtiferðaskipa næstu ár eftir miklar og tíðar breytingar …

Gæludýraverslunin VOFF opnar í miðbæ Húsavíkur

Á morgun, miðvikudag, opnar gæludýraverslunin VOFF Garðarshólmi í miðbæ Húsavíkur, í því húsnæði sem un áratugi hýsti bakarí í miðbæ Húsavíkur, en Garðarshólmi rak áður minni gæludýraverslun í fyrrum húsnæði Víkurrafs, sem nú verður hið nýja bakarí. „Við erum að flytja gæludýrabúðina hingað þar sem bakaríið sjálft er nú …

Björn Gíslason ráðinn verkefnastjóri atvinnuuppbyggingar á Bakka

Björn Gíslason hefur verið ráðinn í starf verkefnastjóra atvinnuuppbygginar á Bakka við Húsavík. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu Norðurþingi segir að hlutverk verkefnastjóra sé að ýta úr vör nýjum verkefnum á Bakka, styðja fjárfesta með greinargóðum upplýsingum og samhæfa vinnu lykilaðila að stórum fjárfestingum á svæðinu. Björn mun hefja störf …

„Þingið sjaldan sameinast jafn skýrt um leiðréttingu á mistökum“

Alþingi hefur samþykkt breytingar á innviðagjaldi farþega skemmtiferðaskipa, en gjaldið hefur verið lækkað úr 2.500 krónum í 1.600 krónur á sólarhring. Breytingartillagan var samþykkt einróma því 57 þingmenn viðstaddir kusu með breytingunni en sex voru fjarverandi. „Sú staðreynd að meirihluti Alþingis sendir svona skýr skilaboð til útgerða skemmtiferðaskipa mun …