Fjöldi Húsvíkinga á leik vinaþjóðanna Íslands og Póllands

Íslenska karlalandsliðið í handbolta hélt áfram sigurför sinni á Evrópumóti karla í handbolta þegar liðið lagði Pólland að velli, 31:23, í öðrum leik sínum í kvöld. Leikurinn fór fram í Kristianstad í Svíþjóð, og var andrúmsloftið frábært, ekki síst vegna fjölmenns hóps Húsvíkinga á pöllunum.

Húsavík.com ræddi við Bylgju Steingrímsdóttur sem hefur verið á EM síðustu daga ásamt stórum vinahópi. „Við fórum hér saman tíu manna hópur og ætlum að taka alla riðlakeppnina, þrjá leiki,“ segir Bylgja. „Meðal þeirra sem eru hér á EM eru ég og Stjáni, Svava og Binni, Adda og Danni, Elmar Örn og Anna Karen, Harpa systir og Mæja Guðmunds. Auk okkar eru þeir félagar Siggi Illuga, Siggi Gunna Palla, Gunni Jó og Simmi Hreiðars, og líka þeir Jónas í Árdal og Grétar frá Fagraneskoti. Þetta er geggjaður hópur“

Stemningin í höllinni var rafmögnuð og íslenski stuðningurinn lét vel í sér heyra. „Þetta er ekkert eðlilega gaman,“ segir Bylgja og viðurkennir að það verði svekkjandi að þurfa að halda heim á fimmtudaginn. „Ég hef fulla trú á að strákarnir fari langt á þessu móti.“

Hópurinn er þegar sammála um eitt: þetta verður ekki síðasta stórmótið saman. „Við mælum sannarlega með því að fólk prófi að upplifa þetta,“ segir Bylgja.