Það verður sannkölluð blakveisla í GPG höllinni á Húsavík um helgina þegar Blakdeild Völsungs býður upp á tvíhöfða bæði laugardag og sunnudag.
Karlalið Völsungs tekur á móti Vestra og eru það jafnframt síðustu leikir liðsins í deildinni á þessu tímabili. Kvennalið Völsungs fær hins vegar lið Þróttar Reykjavík/BFH í heimsókn og því má búast við spennandi viðureignum.
Leikir verða því tveir hvorn dag og mikið um að vera í höllinni.
„Sjoppan verður í sínu fínasta dressi og við vonumst til að sjá sem flesta í höllinni og alvöru stemningu. Áfram Völsungur,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu blakdeildarinnar.
Blakáhugafólk og aðrir Húsvíkingar eru hvattir til að fjölmenna í höllina og styðja liðin í síðustu leikjum tímabilsins.

