Stjórn hafnasjóðs segir ákvarðanir hafa verið teknar af meiri heift en skynsemi

Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings fundaði í morgun vegna kröfu Gentle Giants á hendur sjóðnum sem nemur um 90,8 milljónum króna. Krafan byggir á dómi Landsréttar þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að hafnasjóður hefði ekki haft heimild til að innheimta farþegagjald með þeim hætti sem gert var. Hæstiréttur hafnaði í janúar beiðni Hafnasjóðs Norðurþings um áfrýjunarleyfi og því stendur dómur Landsréttar óhaggaður.

Ákvarðanir sem eldast afar illa

Í harðorðri ályktun stjórnar Hafnasjóðs Norðurþings í morgun segir meðal annars: „Á árunum 2015–2020 voru teknar ákveðnar stjórnvaldsákvarðanir af þáverandi ráðamönnum Norðurþings sem eldast afar illa. Þessar ákvarðanir voru teknar af meiri heift en skynsemi og það eru þessar ákvarðanir sem eru á gjalddaga núna og við sitjum uppi með það.“

Þá segir jafnframt að hafnasjóður sé í samtali við fyrirtæki sem stunda hvalaskoðun frá Húsavík og að unnið sé að því að finna lausn á málinu. „Við erum í samtali við félögin sem stunda hvalaskoðun frá Húsavík og erum að reyna að leysa úr stöðunni og vonandi náum við einhverri lausn í málinu þar sem hvalaskoðunartímabilið er að hefjast.“

Vonast eftir sátt

„Ég fagna því að fólk sé farið að sjá hlutina í réttu ljósi og að það hafi verið of langt tímabil þar sem unnin voru alls konar óhæfuverk í annarlegum tilgangi. Þar fóru fremstir í flokki fyrrverandi sveitarstjóri, skipulagsfulltrúi og lögmaður Norðurþings. Nú er mál að linni, og þótt fyrr hefði verið,“ segir Stefán Guðmundsson forstjóri Gentle Giants.

Í ályktun hafnasjóðs kemur einnig fram að mikilvægt sé að sátt náist í málinu, bæði fyrir sveitarfélagið og fyrirtækin sem byggja starfsemi sína á aðstöðu hafnarinnar. „Það er hagur sveitarfélagsins og sérstaklega fyrirtækjanna sem byggja alla sína þjónustu á þeirri aðstöðu sem þeir hafa haft full afnot af til að þjónusta sína farþega og gesti að sátt sé um málið og þá helst til framtíðar.“