Á miðnætti á mánudag rann út frestur til að bjóða sig fram til embættis formanns Bændasamtaka Íslands. Samkvæmt samþykktum samtakanna er formaður kosinn á tveggja ára fresti með rafrænni kosningu meðal allra félagsmanna. Ef aðeins einn frambjóðandi gefur kost á sér telst hann sjálfkjörinn þegar framboðsfresti lýkur. Trausti Hjálmarsson, sauðfjárbóndi í Austurhlíð, var einn í framboði og er því sjálfkjörinn formaður Bændasamtaka Íslands til ársins 2028.
Aðalstarf Trausta er sauðfjárbúskapur, en hann hefur gegnt starfi formanns Bændasamtakanna frá árinu 2024. Áður starfaði hann meðal annars við rúning, járningar og tamningar hrossa. Hann er menntaður búfræðingur frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri.
Trausti á einnig að baki áralanga reynslu af félagsstörfum bænda. Hann sat í stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda, síðar deild sauðfjárbænda innan Bændasamtaka Íslands, frá árinu 2017 til 2024 og gegndi þar formennsku á árunum 2022 til 2024, að því er fram kemur í tilkynningu frá Bændasamtökunum.
„Ég tel að það séu mikil tækifæri fyrir íslenskan landbúnað til sóknar og hef áhuga á að fylgja áfram þeim málum sem ég hef unnið að með stjórn Bændasamtakanna og stjórnum búgreinadeildanna síðustu tvö árin,“ segir Trausti.

