Nýtt framboð

Óskalistinn er glænýtt framboð, samansett af fólki úr hinum ýmsu stéttum úr atvinnulífinu. Iðnaðarmenn, sjómenn, kennari, rithöfundur, bókari, bændur, verktakar, sjúkraflutningamaður,verkamenn og allskonar annað. Flest á listanum eigum við það sameiginlegt að hafa litla eða jafnvel bara enga reynslu úr sveitarstjórnarsetu eða annari vinnu er viðkemur pólitík. Við erum …

Leikskóli

Leikskólar eru hornsteinn í velferð barna og barnafjölskyldna í velferðarsamfélagi nútímans. Þar þroska þau andlegan/tilfinningalegan, félagslegan og líkamlegan þroska, að mestu í gegnum leik, félagslega virkni og sköpun af ýmsu tagi í örvandi umhverfi. Í Norðurþingi gegna leikskólarnir Grænuvellir á Húsavík og Lundarkot Öxarfirði mikilvægu hlutverki. Á Grænuvöllum eru …

Þegar reksturinn skapar tækifæri

Á undanförnum árum hefur fjárhagsleg þróun sveitarfélagsins endurspeglað skýra stefnu, þar sem jafnvægi, ábyrg fjármálastjórn og markviss uppbygging fara saman. Gögn tímabilsins 2020–2026 sýna hvernig traustur rekstrargrundvöllur hefur smám saman skapað aukið svigrúm til fjárfestinga. Þessi þróun er ekki tilviljun heldur afrakstur meðvitaðra ákvarðana sem miða að því að …

Setjum fjölskylduna í fyrsta sæti

Aðaláhersla í málefnastarfi Samfylkingarinnar á landsvísu hefur snúist um hvernig við léttum ykkur daglega lífið. Það er einnig aðaláhersla Samfylkingarinnar í Norðurþingi. Víða á landinu hafa verið boðaðir gjaldfrjálsir leikskólar, en þar er ekki öll sagan sögð. Grunnhugmyndin snýst oftar en ekki um að frítt sé fyrir ákveðna grunn …

Nýtt líf á Húsavík

Ég heiti Monika og er frá Litháen. Ég kom til Íslands árið 2019, þá 19 ára gömul, með það í huga að dvelja aðeins í sex mánuði áður en ég myndi flytja aftur heim. Sú áætlun breyttist fljótt. Mér líkaði vel að búa og starfa hér hjá PCC og fann að ég gæti byggt mér framtíð á Íslandi. Síðan þá hef ég búið á Húsavík, samfélagi sem minnir mig á uppvöxt minn í litlum bæ í Litháen sem heitir Ariogala.

Hafnir Norðurþings

Í Norðurþingi eru þrjár hafnir og útgerð stunduð á ársgrundvelli, í tveimur þeirra, og hluta árs eða á vorin í þeirri þriðju. Nú eru stórar og fjárfrekar aðgerðir í Húsavíkurhöfn sem vonandi mun leiða til þess að skapa frekari tekjur og umsvif fyrir hafnarsjóð sem mér skilst að standi …

Breyttur vinnumarkaður – ný tækifæri

Á undanförnum árum hafa orðið miklar breytingar á starfsumhverfi opinberra starfsmanna og annarra á þjónustumarkaði. Í kjölfar heimsfaraldursins COVID-19 hefur fjarvinna og verkefnamiðuð störf orðið algengari og varanlegri kostur en áður. Sú þróun sem skapaðist með aukinni fjarvinnu átti að leiða til fleiri og fjölbreyttari starfa á landsbyggðinni hefur …