Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga rann út á hádegi í dag og er ljóst að þrjú framboð muni keppa um sæti í sveitarstjórn Þingeyjarsveitar í kosningunum í vor. Eins og Húsavík.com hafði áður greint frá sér fram á mikla endurnýjun í sveitarstjórn Þingeyjarsveitar.
> Sjá einnig: Þingeyjarsveit: Fækkað um tvo í sveitarstjórn og fimm fulltrúar hætta
Framboðin þrjú eru Á-listi Ábyrgðar, L-listi Framfara og N-listinn. Það lítur út fyrir að aðeins tveir fulltrúar sitji áfram, þeir Eyþór Kári Ingólfsson og Knútur Jónasson. Bylgja Dögg Sigurbjörnsdóttir í öðru sæti N-lista sat auk þess eitt kjörtímabil í sveitarstjórn Vopnafjarðar, en aðrir efstu fulltrúar koma nýjir í sveitarstjórnarmálin.
Á myndinni má sjá fráfarandi sveitarstjórn Þingeyjarsveitar.
Framboðslistar í Þingeyjarsveit 2026
Þrjú framboð bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga í Þingeyjarsveit.
Á-listi Ábyrgðar
- Knútur Jónasson – byggingarfræðingur, Knútsstöðum 1, Aðaldal
- Nanna Marteinsdóttir – leikskólastjóri, Arnþórsgerði, Kaldakinn
- Anna Bragadóttir – landfræðingur, Skútahrauni 3, Reykjahlíð, Mývatnssveit
- Dóra Rún Kristjánsdóttir – leikskólakennari, Hróarsstöðum 2, Fnjóskadal
- Hörður Sigurðsson – slökkviliðsstjóri, Einarssstöðum, Reykjadal
- Sigurlína Tryggvadóttir – landfræðingur, Svartárkoti 1B, Bárðardal
- Líney Rúnarsdóttir – lögfræðingur, Sólvangi 3, Fnjóskadal
- Sigurður Guðni Böðvarsson – bóndi, Gautlöndum 1, Mývatnssveit
- Sæmundur Þór Sigurðsson – málarameistari, Vallholti, Reykjadal
- Ósk Helgadóttir – skólaliði-stuðningsfulltrúi, Merki, Fnjóskadal
- Arnheiður Rán Almarsdóttir – auðlindafræðingur, Grímsstöðum 1, Mývatnssveit
- Gísli Sigurðsson – sérfræðingur, Brekkukoti, Aðaldal
- Hallgrímur Hallsson – bóndi, Árhólum, Laxárdal
- Sigrún Jónsdóttir – kennari á eftirlaunum, Sólgarði, Fnjóskadal
L-listi Framfara
Borgaralegt framboð með áherslu á að efla atvinnu og fjölga íbúum, þá sérstaklega barnafjölskyldum.
- Hallgrímur Páll Leifsson – flugmaður/skíðaþjálfari
- Freydís Anna Ingvarsdóttir – bóndi/sjúkraflutningamaður
- Snæþór Haukur Sveinbjörnsson – bóndi
- Snorri Már Snorrason – bóndi
- Jón Sverrir Sigtryggsson – verktaki
- Soffía Kristín Jónsdóttir – framkvæmdastjóri/umboðsmaður
- Ólafur Ragnarsson – forstjóri
- Anton Freyr Birgisson – framkvæmdastjóri
- Gunnar Ingi Jónsson – rafvirki
- Brynjarr Árnason – bóndi
- Elísabet Sigurðardóttir – starfsmaður í ferðaþjónustu
- Jóhannes Már Sigurðarson – lögmaður
- Kristján Jónsson – bóndi/húsvörður
- Natalía Sól Jóhannsdóttir – starfsmaður á leikskóla
N-listinn
- Eyþór Kári Ingólfsson – búfræðinemi, Úlfsbæ, Bárðardal
- Bylgja Dögg Sigurbjörnsdóttir – kennari, Klappahrauni, Mývatnssveit
- Jónas Þórólfsson – bóndi/kjötiðnaðarmaður, Syðri-Leikskálá, Útkinn
- Hermann Aðalsteinsson – bóndi, Lyngbrekku, Reykjadal
- Garðar Finnsson – hótelstjóri, Birkihrauni, Mývatnssveit
- Nína Björg Sæmundsdóttir – sérfræðingur, Lautavegi, Laugum
- Ásta Hrönn Hersteinsdóttir – bókari/leikskólaliði, Melgötu, Ljósavatnsskarði
- Bjarni Ole Apel Ingason – bóndi/húsasmiður, Hálsi, Fnjóskadal
- Friðrika Sigurgeirsdóttir – húsmóðir/bóndi, Bjarnastöðum, Bárðardal
- Ingvar Vagnsson – lífeyrisþegi, Hlíðarenda, Bárðardal
- Hjördís Ólafsdóttir – sálfræðingur, Hólabaki, Aðaldal
- Haraldur Bóasson – eldhússtarfsmaður, Lautavegi, Laugum
- Ásdís Illugadóttir – eldriborgari, Helluhrauni, Mývatnssveit
- Halldór Þorlákur Sigurðsson – bóndi, Kálfaströnd 1, Mývatnssveit