Skíðasvæði Norðurþings verður opið yfir páskahátíðina. Lyftan var opin í gær 1. apríl en lokað er í dag. Svæðið opnar aftur á morgun, föstudaginn 3. apríl.
Opnunartímar næstu daga eru eftirfarandi:
Föstudagur 3. apríl: 10:30–14:30
Laugardagur 4. apríl: 10:30–14:30
Páskadagur, sunnudagur 5. apríl: 10:30–14:30
Annar í páskum, mánudagur 6. apríl: 10:30–14:30
Að því er fram kemur á vef Norðurþings verða gönguspor troðin eftir því sem veður og aðstæður leyfa.
Gestir eru hvattir til að fylgjast með Facebook-síðu skíðasvæðisins þar sem birtar eru reglulegar upplýsingar um aðstæður, mögulegar aukaopnanir eða lokanir ef veður breytist skyndilega.
Einnig er hægt að fylgjast með aðstæðum í gegnum vefmyndavél svæðisins.
Ljósmynd: Magnús Máni Sigurgeirsson

