Fréttavefurinn Húsavík.com fékk alls 83 þúsund heimsóknir í mars og er það lang besti mánuðurinn okkar hingað til. Um er að ræða gríðarlega aukningu frá fyrri mánuðum, en í febrúar voru heimsóknir 36 þúsund og í janúar 34 þúsund.
Þróunin síðustu mánuði sýnir mikinn vöxt og áhuga á staðbundinni fjölmiðlun sem við erum þakklát fyrir:

Alls birtum við 162 fréttir í mars, um fjölbreytt málefni. Mest lesna greinin í mánuðinum var Sunnudagsviðtal við Tönju Ísfjörð, en um þrjú þúsund manns lásu það. Þá vakti einnig mikla athygli umfjöllun um framboð Óskalistans, sem var lesin af tæplega tvö þúsund manns, en almennt voru fréttir tengdar framboðum og sveitarstjórnarmálum mikið lesnar.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir mest lesnu og mest deildu fréttir mánaðarins:

