Kvenfélag Húsavíkur gaf Húsavíkursöfnuði nýja eldavél í Bjarnahús

Kvenfélag Húsavíkur gaf Húsavíkursöfnuði nýverið eldavél til notkunar í Bjarnahús. „Tengsl Kvenfélagsins og kirkjunnar eiga sér langa og fallega sögu. Í dag er safnaðaheimilið Bjarnahús, í raun einnig heimili Kvenfélagsins, þar halda kvenfélagskonur sína fundi og stærri viðburðir eins og að skera út laufabrauðið og útbúa mæðradagsblóm þeir fara fram í Bjarnahúsi,“ segir Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir sóknarprestur á Húsavík.

Hinn vinsæli jólamarkaður Kvenfélagsins er einnig alltaf í lok nóvember í húsinu. „Bjarnahús er vel nýtt sem safnaðarheimili og samkomustaður. Fyrir utan hefðbundið safnaðarstarf, sunnudagaskóla, fermingarstarf, TTT- fundi foreldramorgna, fræðslustundir og sóknarnefndarfundi eru nokkur félög sem nýta safnaðarheimilið í góðu samstarfi við söfnuðinn,“ segir Sr. Sólveig Halla

Kvenfélagið styður starf kirkjunnar bæði með fjárstyrkjum en einnig gaf félagið söfnuðinum nýverið eldavél sem nýtist vel í eldhúsinu í Bjarnahúsi.

„Einnig aðstoðar kvenfélagið við kirkjukaffi eða aðra viðburði og sjá um fermingarkyrtlana við fermingarathafnir á vorin. Listin yfir gjafir til safnaðarins í gegnum áratugina er ábyggilega býsna langur,“ segir Sr. Sólveig Halla

„Önnur félög, til dæmis Soroptimistakonur halda sína fundi í Bjarnahúsi og launa með því að sjá um kirkjukaffi, súpu og brauð einu sinni á ári, að lokinni minningarmessu fyrsta sunnudag í nóvember ár hvert. Lóan, stuðningshópur fyrir krabbameinsveika og aðstandendur, heldur einnig sýna fundi og hefur haft opið hús og boðið upp á veitingar við slík tilefni. Lóan hefur boðið fram aðstoð sína við barnastarf kirkjunnar í staðinn.

Í kjallara Bjarnahúss hafa AA menn sína fundaraðstöðu og eru til taks ef óskað er eftir, þeir hafa t.d. séð um að setja upp jólaséríur utandyra sl. tvö ár.
Þá má nefna að hefð er fyrir því hjá Kvenfélaginu, þegar meðlimur missir maka, þá bjóða kvenfélagskonur aðstandendum upp á súpu og brauð í Bjarnahúsi, yfirleitt á milli kistulagningar og útfarar. Það hefur reyndar einnig færst í vöxt að aðstandendur nýta sér Bjarnahús á milli athafna, til að fá sér kaffisopa eða aðra hressingu. Safnaðarheimilið er eign sóknarbarna og við erum þakklát fyrir þann stuðning sem sóknin fær frá aðilum sem vilja styrkja bæði húsnæðið og ekki síst lífið innan veggja þess. Bestu þakkir til Kvenfélags Húsavíkur og annarra velunnara Húsavíkursóknar,“ segir Sr. Sólveig Halla að lokum.