Fjölmenni hefur safnast saman á Húsavíkurhöfn í dag þar sem óvenjulegur gestur hefur vakið mikla athygli, stór og rólegur rostungur sem hefur legið makindalega í rennunni framan við Stéttina.
Margir bæjarbúar og gestir hafa lagt leið sína niður á bryggju til að berja dýrið augum, en rostungurinn virðist lítt kippa sér upp við umganginn og hefur legið kyrr.
Guðný María Waage hjá Dýraeftirliti Norðurþings segir rostunginn vel á sig kominn og ekkert benda til annars en að hann sé einfaldlega að taka sér hvíld. „Hann lítur mjög vel út, er spikfeitur og salla rólegur. Við biðjum fólk þó að halda hæfilegri fjarlægð og trufla hann ekki,“ segir Guðný í samtali við Húsavík.com.
Ekki er vitað með vissu hvaðan rostungurinn kemur, en talið er líklegt að hann hafi villst af leið frá heimkynnum sínum norðar á slóðum og ákveðið að taka stutt stopp á Húsavík. Slíkar heimsóknir eru afar sjaldgæfar hér við land.
Starfsmenn hafnarinnar og viðbragðsaðilar fylgjast með aðstæðum og eru viðbúnir ef þörf krefur, en að svo stöddu virðist ekkert annað þurfa að gera en að leyfa þessum óvænta gesti að njóta sín.
Húsavík hefur oft verið kölluð höfuðstaður hvalaskoðunar, en í dag bætti bærinn óvænt við sig nýrri tegund í safnið.
Uppfært 2. apríl 2026 kl. 13.35: Hér var vitanlega um aprílgabb að ræða.

