Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar gekk betur á síðasta ári en ráð var fyrir gert og skilaði bæjarsjóður rúmlega milljarðs afgangi, þrátt fyrir að fjárhagsáætlun hafi gert ráð fyrir 846 milljóna króna afgangi. Þetta kemur fram í ársreikningi sveitarfélagsins sem lagður var fram í bæjarráði fyrir helgi og var til umræðu í bæjarstjórn í dag. Akureyri.net greindi frá.
Niðurstaða A-hluta var þó neikvæð um 422 milljónir króna, en B-hluti bætti stöðuna og var heildarniðurstaða samstæðunnar jákvæð. Rekstur fyrir fjármagnsliði og tekjuskatt var tæpir 2,4 milljarðar króna, sem er undir áætlunum, meðal annars vegna aukinna lífeyrisskuldbindinga. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri segir niðurstöðuna engu að síður ánægjulega og bendir á að fjölgun íbúa og uppbygging í bænum gefi tilefni til bjartsýni um framhaldið.

