Sigurður Valdimar Olgeirsson, eða Siggi Valli eins og hann er jafnan kallaður, tekur við starfi framkvæmdastjóra Völsungs. Siggi er flestum Völsungum vel kunnugur enda uppalinn innan félagsins og hefur tekið virkan þátt í starfi þess í fjölmörg ár.
Hann hefur þegar hafið störf og segist spenntur fyrir verkefninu fram undan. Að hans sögn eru fjölmörg sóknartækifæri innan félagsins sem hann hlakkar til að takast á við.
Samhliða þessum breytingum kveður félagið Jónas Halldór Friðriksson sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra frá haustinu 2018. Jónas hafði áður sinnt starfinu á árunum 2014–2016 og átti meðal annars stóran þátt í að koma á fót samþættingaverkefni Völsungs, Norðurþings, Borgarhólsskóla og Grænuvalla sem hófst árið 2022, verkefni sem hefur hlotið góðar undirtektir í samfélaginu.
Í tilkynningu þakkar Völsungur Jónasi fyrir hans mikilvæga framlag til félagsins og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Sigga Valla ásamt Bergi Jónmundssyni, formanni Völsungs, við undirritun fyrr í dag.

