Hitnar í kolunum í aðdraganda þjóðaratkvæðisgreiðslu um helgina

Það er farið að hitna í kolunum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið, sem fram fer laugardaginn 29. ágúst. Húsvíkingar vöknuðu við mikið breyttan bæ í morgun, en búið var að reisa stæður af heyrúllum víða um bæinn með skýrum skilaboðum frá Stefáni Guðmundssyni og nokkrum vinum og kunningjum.

„Við viljum leggja okkar af mörkum til að verja það sem við höfum sem þjóð og hafna því að embættismenn í Brussel fari að ráðskast með okkar hagsmuni,“ segir Stefán Guðmundsson framkvæmdastjóri, sem er einn þeirra sem standa að framtakinu.

Stefán segir þau vandamál sem stuðningsmenn áframhaldandi viðræðna nefna að mestu heimatilbúin og hafnar því að lausnirnar sé að finna hjá Evrópusambandinu.

„Einhver HókusPókus-lausn í Brussel er ekki til. Lausnin er hjá okkur,“ segir hann og gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að vilja að hans mati dreifa athyglinni frá eigin vandamálum.

Stefán leggur sérstaka áherslu á mikilvægi sjávarútvegsins og segir andúð á atvinnugreininni vera einn helsta drifkraftinn í vegferðinni að Evrópusambandinu. Sjávarútvegurinn hafi lagt grunn að velsæld þjóðarinnar og skapi enn fjölmörg störf, bæði beint og óbeint.

„Við erum ein ríkasta þjóð í heimi og velferðin er hvergi meiri. Við höfum stjórnað okkar málum sjálf,“ segir Stefán og hvetur kjósendur til að segja nei á laugardaginn.

Nánar verður fjallað um þjóðaratkvæðagreiðsluna á vefnum Húsavík.com næstu daga.