Starfsmaður í landeldi – Rifós, Kelduhverfi

Kaldvík leitar að duglegum og jákvæðum starfsmanni í landeldi við seiðaeldisstöð fyrirtækisins að Rifósi í Kelduhverfi.

Starfið felur í sér daglega umhirðu og eftirlit með fiski í landeldi með áherslu á dýravelferð, gæði og öryggi í starfi. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi í vaxandi og spennandi atvinnugrein.

Vinnutími er 7 dagar vinna og 7 dagar frí, á 12 klukkustunda vöktum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Dagleg umhirða og eftirlit með fiski
  • Fóðrun og vöktun á hegðun fisks
  • Mælingar og skráningar
  • Þrif og sótthreinsun á búnaði og aðstöðu
  • Eftirlit með eldiskerfum og tækjabúnaði

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og/eða reynsla í fiskeldi, líffræði eða tækni er kostur
  • Góð öryggis-, gæða- og umhverfisvitund
  • Frumkvæði, ábyrgð og fagleg vinnubrögð
  • Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi

Fríðindi í starfi

  • Fæðishlunnindi
  • Heilsu- og menntunarstyrkir
  • Góð vinnuaðstaða og tækifæri til útivistar
  • Fjölskylduvænn vinnustaður

Um Kaldvík

Kaldvík er eitt af leiðandi laxeldisfyrirtækjum Íslands og rekur samþætta virðiskeðju frá seiðaframleiðslu til eldis og vinnslu. Aðalstarfsemi fyrirtækisins er á Austfjörðum, en Kaldvík starfar í fimm sveitarfélögum og er með starfsstöðvar á Suðurlandi, Norðurlandi og Austfjörðum, alls á ellefu stöðum.

Hjá fyrirtækinu starfa um 190 hæfir starfsmenn á öllum stigum virðiskeðjunnar. Þar vinnur öflugur og fjölbreyttur hópur fólks af ólíkum kynjum og þjóðernum saman að því að framleiða fyrsta flokks lax fyrir viðskiptavini um allan heim.

Kaldvík framleiðir árlega lax sem jafngildir tæplega 120 milljónum máltíða og leggur ríka áherslu á sjálfbærni, gæði og samfélagslega ábyrgð.

Kaldvík hf. er skráð á Euronext Growth í Osló og Nasdaq First North Growth Market á Íslandi, sem endurspeglar metnað fyrirtækisins til vaxtar, gagnsæis og ábyrgra starfshátta.

Umsóknir

Netfang: umsoknir@kaldvik.is

Umsóknarfrestur: 20. júlí 2026.